„Ef ég væri jafngamall og hún væri ekki séns að ég væri að setja þetta skot ofan í“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. desember 2025 11:00 Hulda María Agnarsdóttir setti niður eftirminnilegt skot undir lok oddaleiks Hauka og Njarðvíkur um Íslandsmeistaratitilinn í vor. vísir/hulda margrét Í kvöld verður leið kvennaliðs Hauka í körfubolta að Íslandsmeistaratitlinum síðasta vor rifjuð upp. Í Íslandsmeistaraþættinum verður meðal annars rætt um stórt augnablik í oddaleik Hauka og Njarðvíkur.
Haukar urðu Íslandsmeistarar í fimmta sinn eftir sigur á Njarðvík í oddaleik á Ásvöllum, 92-91. Þóra Kristín Jónsdóttir kom Haukum í 79-73 með þriggja stiga körfu þegar hálf mínúta var eftir. Brittany Dinkins minnkaði muninn með þristi og hin sautján ára Hulda María Agnarsdóttir setti svo annan þrist skömmu síðar, jafnaði í 79-79 og tryggði Njarðvíkingum framlengingu. „Þóra setur þrist og kemur okkur yfir þegar einhverjar þrjátíu sekúndur voru eftir. Ég hélt að þetta væri komið. Þetta var það hættulega, að halda að þetta væri komið. En manni leið virkilega vel með þennan þrist,“ sagði Emil Barja, þjálfari Hauka, í Íslandsmeistaraþættinum. Klippa: Íslandsmeistaraþáttur Hauka 2025 „Síðan taka þeir síðasta innkastið og einhvern veginn stendur Hulda galopin við þriggja stiga línuna,“ rifjaði Þóra upp. „Þvílíkt hrós á hana að setja þetta skot ofan í til að koma þessu í framlengingu. Ef ég væri jafngamall og hún væri ekki séns að ég væri að setja þetta skot ofan í,“ sagði Emil um skotið hjá Huldu. Haukar höfðu svo betur í framlengingunni, 13-12, og tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta sinn í sjö ár. Brot úr Íslandsmeistaraþætti Hauka má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Íslandsmeistaraþáttur Hauka verður sýndur klukkan 20:00 á Sýn Sport Ísland í kvöld.
Bónus-deild kvenna Haukar UMF Njarðvík Mest lesið Uppgjörið:Valur - Keflavík 90-74| Valsmenn sendu Keflavík í sumarfrí Körfubolti Haaland hetja City og apríl verður enn verri fyrir Arsenal Enski boltinn „Ég er bara í skýjunum með að hafa unnið hann“ Sport Lést í fjöldaárekstri á Nürburgring-brautinni Formúla 1 Braust út úr klefanum þegar æfir stuðningsmenn Bröndby fóru heim til hans Fótbolti „Ég er hrikalega stoltur af honum“ Fótbolti Van Dijk tryggði Liverpool sigur í nágrannaslagnum Enski boltinn Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 81-87 | Grindavíkurkonur byrja betur Körfubolti Elísabet stórbætti Íslandsmetið og Júlía hljóp annað met Guðrúnar uppi Sport Keflavík hefur ekki unnið oddaleik í fimmtán ár Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið:Valur - Keflavík 90-74| Valsmenn sendu Keflavík í sumarfrí „Orðnar betri í að standa saman og klára leikinn“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 81-87 | Grindavíkurkonur byrja betur Keflavík hefur ekki unnið oddaleik í fimmtán ár Luke leiddi Lakers til sigurs í fjarveru Luka Hamar/Þór áfram í Bónusdeildinni eftir endurkomusigur Tryggvi góður en liðið tapaði leik sem þurfti að vinnast Kerr íhugar framtíð sína eftir tap í umspilinu Stighæsti leikmaður Ólympíuleikanna látinn Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Sindramenn og Blikar byrja vel Uppgjör: KR-Keflavik 83-91 | Keflavíkurkonur í undanúrslit Luka Doncic vann áfrýjunina og er gjaldgengur fyrir öll verðlaun NBA Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Curry hélt stríðsmönnunum á lífi Völdu kærustu hennar líka númer eitt Uppgjörið: Keflavík-Valur 88-81 | Keflavík tryggði sér oddaleik J. Cole slítur samningi sínum í Kína Olnbogi Ægis brotnaði „Þeir hefðu átt að henda honum út úr húsi fyrir þetta“ „Brugðumst vel við í krefjandi aðstæðum“ „Ætluðum okkur lengra en stoltur af liðinu“ „Ótrúlegar 50 mínútur af körfubolta“ Uppgjörið: KR-Stjarnan 115-118 | Stjarnan vann án Ægis og eftir tvær framlengingar Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 84-91 | Grindvíkingar í undanúrslit Ægir fluttur í burtu í sjúkrabíl Hamar/Þór einum sigri frá Bónus eftir sigurkörfu á lokasekúndu KR með bakið upp við vegg: „Erum ekki klárir í að fara í sumarfrí“ Uppgjörið:Keflavík-KR 101-65: Keflavíkurkonur tryggðu sér oddaleik „Djöfull er íslenska þjóðin orðin geðveik“ Sjá meira