Leita í rústum íbúðahúsa Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 27. desember 2025 12:13 Fjöldi íbúahúsa eru ónýt. EPA Hjálparstarfsmen í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, leita nú að fólki sem liggur í rústum íbúðahúsnæðis. Rússar siguðu yfir fimm hundruð sprengjudrónum á höfðuborgina í nótt.
Í færslu á X segir Vólódimír Selenskí Úkraínuforseti að yfir fimm hundruð sprengjudrónum og fjörutíu flugskeytum hefði verið herjað á höfuðborgina. Helstu skotmörkin voru orkuvirkjanir og innviðir borgarinnar. „Því miður urðu byggingar fyrir árásum og venjuleg íbúðarhús hafa skemmst. Hjálparstarfsmenn leita að manneskju sem er föst undir rústum eins þeirra. Í sumum hverfum höfuðborgarinnar og umhverfis hana er hvorki rafmagn né hiti til staðar,“ segir forsetinn. Another Russian attack is still ongoing: since last night, there have been almost 500 drones – a large number of “shaheds” – as well as 40 missiles, including Kinzhals. The primary target is Kyiv – energy facilities and civilian infrastructure. Regrettably, there have been hits,… pic.twitter.com/OxBntAUgla— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) December 27, 2025 Árásin stóð í tíu klukkstundir, einn lést og yfir tuttugu særðust. Þriðjungur Kænugarðs er án hita eftir umfangsmiklar árásir Rússa samkvæmt The Guardian. Kallar eftir aðstoð Á aðfangadag kynnti Selenskí drög að tuttugu punkta friðaráætlun eftir nokkurra vikna samningaviðræður milli þeirra og Bandaríkjanna. Þá stendur til að forsetinn ræði við evrópska leiðtoga í dag og Bandaríkjaforseta á sunnudag. „Fulltrúar Rússlands taka þátt í löngum viðræðum en Kinzhal-flaugar og „shahed“-drónar tala sínu máli. Þetta er hið sanna viðhorf Pútíns og hans innsta hrings. Þeir vilja ekki binda endi á stríðið og reyna að nota hvert tækifæri til að valda Úkraínu enn meiri þjáningum og auka þrýsting sinn á aðra um allan heim,“ segir Selenskí. „Ef Rússland breytir jóla- og nýárstímanum í tíma eyðilagðra heimila og brenndra íbúða, eyðilagðra orkuvera, þá er einungis hægt að bregðast við þessari sjúku starfsemi með sannarlega öflugum aðgerðum. Bandaríkin hafa þessa getu. Evrópa hefur þessa getu. Margir samstarfsaðilar okkar hafa þessa getu. Lykilatriðið er að nýta hana.“ Funda um ágreiningspunktana Í dag mun Selenskí ræða við leiðtoga í Evrópu, þar á meðal Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópu. Til umræðu verða öryggistryggingar Úkraínu að stríðinu loknu og uppbygging landsins. Þá verður einnig til umræðu yfirráðasvæði þeirra í Donbas-héraðinu og Zaporizhzhia-kjarnorkuverið. Yfirráðasvæðið og kjarnorkuverið eru punktarnir tveir þar sem lausnin liggur enn ekki fyrir. Bandaríkin vilja að löndin þrjú reki kjarnorkuverið saman en Úkraínumenn vilja einungis eiga í samstarfi með Bandaríkjamönnum, ekki Rússum. Rússar vilja þá að Úkraína gefi upp landsvæði í Donetsk-héraðinu en Úkraína vill frysta víglínurnar líkt og þær eru núna.
Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Rússland Bandaríkin Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Sjá meira