Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. desember 2025 23:01 Ruben Amorim fagnar sigri Manchester United á Old Trafford í kvöld. Getty/Carl Recine Ruben Amorim, var kátur í sjónvarpsviðtali eftir sigurleikinn á Newcastle á Old Trafford enda var hann augljóslega mjög sáttur með þrjú dýrmæt stig.
Stjóri Manchester United sá sína menn landa mikilvægum þremur stigum í sigri á Newcastle í kvöld í leik þar sem liðið var án margra mikilvægra leikmanna og Portúgalinn var með akademíuleikmenn á bekknum. Ofan á allt þurfti Mason Mount að fara meiddur af velli í hálfleik en liðið missti fyrirliðann Bruno Fernandes í leiknum á undan og var líka án sterkra varnarmanna og öflugra leikmanna sem eru uppteknir í Afríkukeppninni. „Við þurfum öll að þjást saman á vellinum. Leikurinn var virkilega erfiður fyrir okkur. Mér fannst við spila góðan fyrri hálfleik en í seinni hálfleik vörðumst við bara og reyndum að gera eitthvað með Matheus] Cunha,“ sagði Amorim. „Við fengum tækifæri í seinni hálfleik í skyndisóknum, en þetta var góður sigur. Ég hef spilað svo marga leiki hér þar sem ég hef sagt að við spiluðum mjög vel en fengum ekki þrjú stig, í dag var það öfugt. Við þurftum að þjást og náðum að vinna leikinn,“ sagði Amorim. „Við höfum átt erfiða tíma og stundum getur það haft góð áhrif á hópinn, en það er gott að hafa þessa tilfinningu, að hafa reynslumikla leikmenn sem hjálpa ungu strákunum að hjálpa liðinu að skilja að við erum að þjást. Það skiptir ekki máli hvort þú ert fyrir utan völlinn, þú getur tekið þátt í leiknum, og mér fannst allir taka þátt í leiknum,“ sagði Amorim. Amorim breytti um leikkerfi í kvöld og spilaði með fjögurra manna varnarlínu. Honum fannst það ganga upp. „Í fyrri hálfleik fannst mér við sýna það. Mér fannst þetta eina leiðin til að skapa meiri hættu, að fá fleiri tækifæri, vera með fjögurra manna varnarlínu og marga leikmenn fyrir innan. Jafnvel til að halda boltanum, því ég man eftir leiknum í fyrra þar sem við töpuðum einn á einn úti á velli. Við reyndum bara að ímynda okkur leikinn og hjálpa leikmönnunum að líða vel,“ sagði Amorim. Hann var með unga leikmenn úr akademíunni á bekknum vegna leikmannaskorts. „Ég þekki sögu félagsins og ég vil vera hluti af því. Stundum þarftu bara að velja bestu leikmennina en í dag var það öfugt. Í mörgum leikjum höfum við sett leikmenn úr akademíunni inn á vegna þess að við urðum að gera það en þeir fá líka spilatíma vegna þess að þeir eiga það skilið,“ sagði Amorim. Síðan kom hnyttin athugasemd frá Portúgalanum í lok viðtalsins: „Hreint mark, fjögurra manna vörn. Ég þarf ekki að halda blaðamannafund. Kobbie Mainoo er meiddur, þannig að öll umræðuefnin eru afgreidd og við getum farið heim að njóta annars dags jóla!“ sagði Amorim á gamansömum nótum.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira