Goðsögn fallin frá Valur Páll Eiríksson skrifar 25. desember 2025 15:30 Robertson (t.v) ásamt góðvini sínum og samstarfsmanni Martin O'Neill. Mike Egerton/EMPICS via Getty Images Skotinn John Robertson, fyrrum leikmaður Nottingham Forest og Derby County, er fallinn frá 72 ára að aldri.
Robertson var öflugur leikmaður sem skoraði meðal annars sigurmark Nottingham Forest í 1-0 sigri á Hamburg í úrslitaleik í Evrópukeppni meistaraliða árið 1980. Þá lagði hann upp sigurmark Trevor Francis í úrslitaleik Forest við Malmö í sömu keppni ári fyrr. Brian Clough, þáverandi þjálfari Forest, kallaði hann á sínum tíma Picasso fótboltans. Slíkar væru listirnar sem hann lék á vellinum. Robertson var náinn samstarfsmaður Martins O'Neill, samherja hans hjá Forest, eftir að leikmannaferli þeirra lauk. Hann var aðstoðarþjálfari O'Neill hjá Wycombe, Norwich, Leicester, Celtic og Aston Villa. Stan Collymore, fyrrum framherji Liverpool, sem lék undir stjórn þeirra hjá Leicester minnist Robertson á samfélagsmiðlinum X: „Hann vissi af vandamálum mínum utan vallar en í stað þess að gera grín að þeim líkt og margir, setti hann öxl utan um mig. Hann studdi við mig og sýndi samkennd sína og góðvild, og sýndi mér raunverulegan stuðning“. Gera má ráð fyrir að Robertson verði minnst þegar Forest mætir Manchester City á City Ground í Nottingham í hádeginu 27. desember. Nánar má lesa um Robertson á vef breska ríkisútvarpsins, BBC.
Enski boltinn Nottingham Forest Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Sjá meira