„Við látum alltaf taka okkur í bakaríið á endanum“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 19. desember 2025 13:42 Sjór gekk yfir þjóðveginn austan við Vík í Mýrdal í gær. Einar Freyr Elínarson Veðurfræðingur Vegagerðarinnar segir brýnt að bregðast við miklum sjógangi við Vík í Mýrdal og að ekki megi sofa á verðinum. Sjór gekk yfir þjóðveginn í gær sem geti haft alvarlegar afleiðingar í för með sér.
Mikill sjór gekk á land við Vík í Mýrdal í gær með þeim afleiðingum að flóð var austan við Vík og sunnan við þjóðveginn og mikill sjór safnaðist saman við bæinn. Austan við Vík gekk sjór yfir þjóðveginn. Þó nokkur sjór safnaðist saman á landi við Vík í Mýrdal.Einar Freyr Elínarson Mbl.is greindi fyrst frá. Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur Vegagerðarinnar, segir sjóganginn í gær vera áhyggjuefni og koma verulega á óvart. „Það virðist vera sem að breytingar hafi orðið á sandinum framan við Vík og líka við Reynisfjöru. Þannig að sjórinn gekk lengra inn á land en venja er til, í ekki verra veðri en var þó. Það var einhver öldugangur og einhver vindur en alls ekki verulega slæmt veður. Ég held að þetta hafi komið fólki í Vík á óvart. Ég var hissa að sjá myndir af þessu í gær.“ Hætta geti fylgt svo miklum sjógangi. Hann segir þetta skýrt dæmi um að það sé mikilvægt að vera vakandi fyrir ágangi sjávar við strendur landsins. „Það gildir um þetta eins og aðrar náttúruvár. Við megum ekki sofna á verðinum. Við þurfum að vera stöðugt meðvituð um þessa hættu. Þessi hætta er ekki ný til komin heldur hefur verið lengi en það er eins og við látum alltaf taka okkur í bakaríið á endanum. Eins og við séum hálfsofandi allavega margir hverjir. En auðvitað er Vegagerðin og almannavarnir að fylgjast með þessu, þó það nú væri.“ Einhver öldugangur var í gær en búast má við enn meiri ákafa á næstu dögum.Einar Freyr Elínarson Hann bendir á að í Kötlugosinu 1918 hafi jarðefni bæst við meðfram ströndinni sem hafi veitt dálitla vörn. Sú vörn sé þó á undanhaldi. „Það er stöðugt verið að naga af viðbótinni frá Kötlugosinu. Það verður að segjast eins og er að þetta er eitt af því fáa jákvæða sem kæmi með nýju Kötlugosi. Þá kæmi nýtt framburðarefni og meira land.“ Hann segir verra veður í vændum fyrir jólin.
Veður Vegagerð Mýrdalshreppur Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Sjá meira