Framhald af Napóleonsskjölunum í vinnslu Magnús Jochum Pálsson skrifar 18. desember 2025 10:07 Vivian Ólafsdóttir fer með aðalhlutverkið í Napóleonsskjölunum 2, rétt eins og fyrri myndinni. Framleiðsla er hafin á kvikmyndinni Napóleonsskjölin 2 – Tár úlfsins sem er beint framhald af Napóleonsskjölunum, sem byggði á samnefndri metsölubók Arnaldar Indriðasonar og naut vinsælda hérlendis og erlendis.
Ólafur Darri Ólafsson, Vivian Ólafsdóttir og Jack Fox snúa aftur og verða í lykilhlutverkum í myndinni auk breska leikarans Tom Weston-Jones sem hefur leikið í sjónvarpsþáttunum Warrior (2019-2023), Shadow and Bones (2021) og Sanditon (2022). Leikstjóri myndarinnar er hinn finnski Jyri Kähönen sem hefur áður leikstýrt sjónvarpsþáttunum Ihon Alla (2015-16) Bordertown (2016-18) og Trackers (2019). Handrit myndarinnar er eftir Martein Þórisson sem einnig skrifaði handrit fyrstu myndarinnar. Gert er ráð fyrir að myndin verði frumsýnd í Sambíóunum næstkomandi haust og síðar víða um heim, þar með talið í Evrópu og Bandaríkjunum. Beta Film sér um dreifingu á myndinni í Evrópu og hefur hún þegar verið seld til Bretlands, Frakklands, Spánar og Póllands. Bandaríska dreifingarfyrirtækið Magnolia Pictures hefur tryggt sér réttinn til dreifingar á myndinni í kvikmyndahús og sjónvarp í Bandaríkjunum. Þegar seld til fjölda landa Fyrri myndin var frumsýnd árið 2023, naut mikillar aðsóknar í íslenskum kvikmyndahúsum og seldist til yfir fjörutíu landa, þar á meðal til Bandaríkjanna. Í Tárum úlfsins heldur aðalsöguhetjan Kristín (Vivian Ólafs) og teymi hennar af stað í nýja og hættulega leit að hinum goðsagnakenndu demöntum nasista, sem sagt er að hafi verið faldir í lok síðari heimsstyrjaldarinnar. Þegar Kristín verður vitni að morði kemst hún á sporið og, ásamt félögunum Steve (Jack Fox) og Einari (Ólafur Darri), reynir hún að ráða dulmál, tónbrot og minjar úr stríðinu sem leiða þau inn á dularfullar söguslóðir Evrópu. Ferðin ber þau frá íslenskum jöklum til finnskra skóga og neðanjarðarganga í Helsinki, þar sem dramatískur lokaslagur fer fram í eyjaklasa Finnlands. Á leiðinni þurfa þau að glíma við svik, leyndarmál og ógnir fortíðar. Framleiðendur myndarinnar eru Beggi Jónsson, Kjartan Þór Þórðarson og Skarphéðinn Guðmundsson fyrir Sagafilm á Íslandi, Aðalsteinn Jóhannsson fyrir framleiðslufyrirtækið Þungur hnífur, ásamt Anitu Elsani og Alexander Klein fyrir þýska Splendid Entertainment og Eero Hietala og Sara Nordberg fyrir Take Two Studios og Elsani Film. Tökur fara fram á Íslandi, í Turku á Finnlandi og í Hamborg. „Tár úlfsins er ætlað að sameina kraft norrænnar glæpasagnahefðar, sögulegar vísanir og metnaðarfulla alþjóðlega kvikmyndagerð. Við byggjum hér áfram á arfleifð Arnaldar Indriðasonar ogvelgengni fyrri myndarinnar sem sýndi að íslenskar glæpasögur geta náð víða — bæði í bíóhúsum og á stærstu streymisveitum heims,“ segir Skarphéðinn Guðmundsson hjá Sagafilm um myndina.
Kvikmyndagerð á Íslandi Tengdar fréttir Fyrsta sýnishornið úr kvikmyndinni Napóleonsskjölin Lífið á Vísi frumsýnir í dag fyrsta sýnishornið úr kvikmyndinni Napóleonsskjölin. Myndin er byggð á samnefndri metsölubók eftir Arnald Indriðason og verður frumsýnd í lok janúar á næsta ári. 18. nóvember 2022 11:01 Mest lesið Upplifði létti þegar mamma dó Lífið Ósátt við að vera sett í starfshæfismat af leikhúsinu Lífið Fréttatía vikunnar: Vík burt, hantaveira og Netflix-uppnám Lífið Inga Tinna keypti 342 fermetra höll Lífið Fögnuðu aldarafmæli með pompi og prakt Lífið Bakaríið í beinni á Vísi Lífið Ástarsorgin átakanleg en gjöful Tónlist Jenner segist hafa veikst af Ozempic Lífið Lítið kjöt á beinum rándýrsins Gagnrýni Fannst látinn á Mallorca eftir höfuðáverka Lífið Fleiri fréttir Dóra og Glassriver náðu samkomulagi Stefnir Cameron fyrir að stela andliti hennar Tvær þáttaraðir og tvær myndir á leiðinni frá Vesturporti Andri Snær verðlaunaður og ný stikla fyrir Um tímann og vatnið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Patrick Muldoon er látinn Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Cruise tekur á loft í þriðja sinn Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Joy Harmon er látin Höfði í stóru hlutverki í æsispennandi stiklu Tæplega helmingur tilnefndra leikara til Eddunnar erlendur Leikarinn Michael Patrick látinn eftir baráttu við MND Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Hugmyndir að hámhorfi um páskana Sjá meira
Fyrsta sýnishornið úr kvikmyndinni Napóleonsskjölin Lífið á Vísi frumsýnir í dag fyrsta sýnishornið úr kvikmyndinni Napóleonsskjölin. Myndin er byggð á samnefndri metsölubók eftir Arnald Indriðason og verður frumsýnd í lok janúar á næsta ári. 18. nóvember 2022 11:01