Krafðist sérlega þungrar refsingar yfir Margréti Höllu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. desember 2025 07:47 Vettvangurinn er þetta einbýlishús við Súlunes á Arnarnesinu í Garðabæ. Vísir/Bjarni Einarsson Saksóknari í Súlunesmálinu svonefnda benti á það í málflutningi sínum í lok nóvember að tilefni væri til að dæma Margréti Höllu Hansdóttur Löf meira en sextán ára fangelsisrefsingu. Von er á dómi í málinu fimmtudaginn 18. desember.
Margrét er ákærð fyrir að hafa banað föður sínum og gert tilraun til að bana móður sinni á heimili þeirra við Súlunes á Arnarnesinu í Garðabæ í apríl síðastliðnum. Margrét er sökuð um að hafa mánuðina á undan beitt foreldra sína margsinnis ofbeldi. Talið er að árásin nóttina örlagaríku sem leiddi til andláts föður hennar hafi staðið yfir í um tíu klukkustundir. Á þriðja vika er liðin síðan aðalmeðferð í málinu lauk. Samkvæmt heimildum Vísis er stefnt á dómsuppsögu í málinu þann 18. desember. Aðalmeðferðinni lauk með málflutningi Karls Inga Vilbergssonar saksóknara og Sigurðar G. Guðjónssonar, verjanda Margrétar Höllu. Þinghald í málinu fór fram fyrir luktum dyrum að beiðni verjanda Margrétar Höllu og réttargæslumanns móður hennar. Hin almenna regla í dómsmálum er sú að þau skulu háð í heyranda hljóði. Dómari í Súlunesmálinu virðist af tillitsemi við ákærðu og móður hennar hafa ákveðið að hafa þinghaldið lokað. Svo fór að Margrét Halla mætti stuttlega til að lesa yfirlýsingu og móðirin kaus að tjá sig ekki. Saksóknari gerir almennt kröfu um refsingu í málflutningi sínum. Samkvæmt heimildum Vísis vísaði saksóknari til 79. greinar almennra hegningarlaga sem heimila aukna refsingu við broti. Samkvæmt 34. grein laganna má hvorki dæma fólk í fangelsi í skemri tíma en 30 daga né lengri en 16 ár en einnig er möguleiki á ævilöngu fangelsi. Tvisvar hefur verið dæmt í ævilangt fangelsi á neðra dómstigi á Íslandi en þeim dómum var snúið við í Hæstarétti. Í rökstuðningi sínum vísaði Karl Ingi meðal annars til þess að Margrét Halla hefði gerst sek um manndráp, tilraun til manndráps en líka til þess mikla ofbeldis gagnvart öldruðum foreldrum hennar í lengri tíma. Þá kemur almennt til refsiþyngingar í sakamálum þegar um náið samband er að ræða, sem á svo sannarlega við í þessu tilfelli.
Grunuð um manndráp við Súlunes Dómsmál Garðabær Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira