Samsæri á Paradísareyjunni Lestrarklefinn 9. desember 2025 09:56 Embla Bachmann hefur sent frá sér nýja bók. Hún er til umfjöllunar á menningarvefnum Lestrarklefinn. Lestrarklefinn er stútfullur af bókaumfjöllun. Hér fjallar Rebekka Sif um nýjustu bók Emblu Bachmann.
Þriðja bók ungstirnisins Emblu Bachmann er komin út! Í þetta skiptið skrifar hún fyrir aðeins yngri markhóp en í bókunum Stelpur stranglega bannaðar (2023) og Kærókeppnin (2024) . Paradísareyjan fjallar um vinina Freyju og Hallgrím sem eyða alltaf sumrinu á eyjunni þar sem Hallgrímur býr með foreldrum sínum. Freyja og pabbar hennar taka ferjuna yfir og búast við sumri fullu af skemmtilegheitum en fljótt kemur í ljós að eitthvað furðulegt er í gangi. Það er nýbúið að kjósa nýjan bæjarstjóra en hann virðist ekki vera traustsins verður, sem er svolítið kaldhæðnislegt þar sem hann heitir einmitt Trausti. Rebekka Sif fjallar um bækur á menningarvefnum Lestrarklefinn Freyja og Hallgrímur taka auðvitað málin í sínar hendur og gerast spæjarar. Freyja er frökk og málglöð en Hallgrímur er svolítið kassalaga og passar að skrá allar vendingar á rannsókninni í minnisbókina sína. Þau eru semsagt frábært teymi. Vinnuvélar birtast og rífa upp jörðina tvist og bast um eyjuna, byggingarsvæðunum fjölgar og fullt af ókunnu fólki dúkka upp á eyjunni sem eru ekki einu sinni að koma þangað til að fara á Eyjuhátíðina. Peningasjúkur kapítalisti Bókin hentar krökkum sem eru hrifin af hversdagslegri ævintýrum sem gætu mögulega gerst í alvörunni þar sem engar hræðilegar ófreskjur eiga þátt í sögunni. Trausti er þó frekar óhuggulegur náungi, minnir mögulega á ákveðinn mann hinu megin við Atlantshafið sem heldur að hann sé einræðisherra. Hann er blanda af peningasjúkum kapítalista og smeðjulegum sölumanni sem sér eyjuna bara sem svæði til að græða á. Svo er náttúruógnin töluverð, eldfjall lúrir á eyjunni sem hótar nú að fara að gjósa en Trausti hunsar allar viðvaranir jarðfræðinga. Bergrún Íris Sævarsdóttir myndlýsir bókinni og er textinn reglulega brotinn upp með fallegum svarthvítum myndum sem undirstrika og bæta við frásögnina. Sérstaklega fannst mér myndirnar af fullorðna fólkinu sem er neytt til að vinna í tívolíinu skemmtilegar, fúli svipurinn í mótsögn við krúttlegu bangsana og kandíflossið. Umfjöllunina í heild sinni má lesa hér. Fleiri ritdóma er að finna á Lestrarklefinn.is
Bókmenntir Menning Jól Mest lesið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal Lífið Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda Lífið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Meryl Streep verður Joni Mitchell Bíó og sjónvarp Fegurðardýrkun í Oz-landi Gagnrýni Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið X-ið bætir við sig Bolla Lífið Fleiri fréttir Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira