Til Borealis Data Center eftir 22 ár hjá Össuri Atli Ísleifsson skrifar 8. desember 2025 08:39 Stefán Örn Kristjánsson er vélaverkfræðingur að mennt. Stefán Örn Kristjánsson hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra rekstrarsviðs hjá Borealis Data Center.
Í tilkynningu segir að Stefán komi til Borealis eftir 22 ára feril hjá Össuri en þar hafi hann á undanförnum árum gegnt lykilhlutverki sem framkvæmdastjóri framleiðslu (e. VP of Global Manufacturing) og borið ábyrgð á rekstri framleiðslueininga fyrirtækisins í Reykjavík, Mexíkó, Skotlandi og Bandaríkjunum. „Stefán er vélaverkfræðingur að mennt, með B.Sc. og M.Sc. gráður frá Háskóla Íslands og stundaði framhaldsnám við Royal Institute of Technology, (KTH) í Stokkhólmi. Á árunum 2022–2024 sat hann sem varamaður í stjórn Samtaka iðnaðarins. Borealis leggur áherslu á rekstur sjálfbærra gagnavera á norðurslóðum en fyrirtækið rekur þrjú gagnaver hér á landi, á Blönduósi, Fitjum í Reykjanesbæ og á Korputorgi í Reykjavík og einnig í Kajaani í Norður-Finnlandi,“ segir í tilkynningunni. Um Borealis Data Center segir að félagið hafi veitt gagnaversþjónustu á Íslandi í meira en áratug og byggi á helstu styrkleikum landsins; grænni orku, hagstæðu loftslagi, tæknivæddu samfélagi og öflugum mannauði sem skapi hér afar góð skilyrði. „Undanfarin ár hefur fyrirtækið aukið þjónustuframboð sitt og í auknum mæli veitt sérhæfðari þjónustu, þar á meðal sérsniðnar innviðalausnir fyrir gervigreind og háafkastaútreikninga. Fyrirtækið er nú í hröðum vexti og hefur fjárfest verulega í frekari uppbyggingu á Blönduósi. Til að mæta ört vaxandi eftirspurn hóf Borealis einnig rekstur í Finnlandi í byrjun árs 2024 en Finnar hafa á undanförnum árum unnið markvisst að því að skapa aðstæður fyrir öflugan gagnaversiðnað þar í landi.“
Vistaskipti Gagnaver Embla Medical Mest lesið Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Viðskipti innlent Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Neytendur Rammagerðin leitar nauðasamninga Viðskipti innlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Kalla inn súkkulaðbitakökur Neytendur Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Viðskipti innlent Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Viðskipti innlent Dóra Björt ráðin deildarstjóri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Sjá meira