Aston Villa með endurkomu í miklum markaleik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. desember 2025 21:36 Ollie Watkins hefur átt erfitt tímabil en skoraði tvö mörk fyrir Aston Villa í kvöld. Getty/Alex Pantling Aston Villa lenti 2-0 undir á útivelli á móti Brighton & Hove Albion í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld en kom til baka og landaði enn einum sigrinum. Nottingham Forest og Crystal Palace unnu bæði 1-0 sigra.
Aston Villa vann 4-3 útisigur á Brighton & Hove Albion. Villa-menn misstu markvörð sinn í meiðsli í upphitun og lentu svo 2-0 undir. Jan Paul van Hecke skoraði fyrsta markið á 9. mínútu og annað markið var sjálfsmark á 29. mínútu. Ollie Watkins jafnaði metin með tveimur mörkum fyrir hálfleik og Amadou Onana skallaði liðið í 3-2 forystu á 60. mínútu. Donyell Malen skoraði fjórða mark Villa á 78. mínútu en Van Hecke minnkaði muninn með sínu öðru marki. Staðan var 4-3 síðustu sjö mínútur leiksins en heimamenn náðu ekki að jafna metin. Þetta var fjórði sigur Aston Villa í röð og liðið er í þriðja sæti deildarinnar, stigi á eftir Manchester City og sex stigum á eftir toppliði Arsenal. Daniel Munoz tryggði Crystal Palace 1-0 útisigur á Burnley þegar hann skallaði inn fyrirgjöf Marc Guehi á fjærstönginni á 44. mínútu. Palace-menn eru í fimmta sætinu. Igor Jesus skoraði eina markið á 72. mínútu þegar Nottingham Forest vann 1-0 útisigur á Wolves. Það var dæmt skallamark af Jesus í fyrri hálfleik en hann bætti úr því með að skalla hann inn í seinni hálfleiknum. Þetta var þriðji sigur Forest í síðustu fjórum leikjum og þeir eru í sextánda sætinu.
Enski boltinn Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Enski boltinn Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Víkingar með bakið upp við vegg Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Náði að plata Óskar Örn Sport Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Sjá meira