Öll hundrað mörk Haalands á hundrað sekúndum Sindri Sverrisson skrifar 3. desember 2025 10:01 Erling Haaland fagnar eftir sigurinn gegn Fulham, þar sem hundraðasta mark hans í ensku úrvalsdeildinni kom. Getty/Jacques Feeney Þrátt fyrir að vera bara 25 ára, og á sinni fjórðu leiktíð með Manchester City, er norska undrið Erling Haaland nú með 100 mörk í ensku úrvalsdeildinni. Öll mörkin hans má nú sjá á Vísi.
Ferðalag Haalands að hundraðasta markinu má sjá hér að neðan og neðar í greininni eru öll hundrað mörkin á aðeins hundrað sekúndum. Það segir sitt um metnað Haalands hvernig hann svaraði fyrir sig í gærkvöld, eftir að hafa skorað hundraðasta markið og lagt upp tvö í 5-4 sigri City á Fulham í Lundúnum. Ég er stoltur og ánægður með að ná 100 mörkum í úrvalsdeildinni. En þegar maður er framherji City þá ætti maður að ná frábærum tölum. Það er mitt starf,“ sagði Haaland. „Fólk ætti að gagnrýna mig ef ég skora ekki, það er vanalega það sem fólk gerir svo að þegar allt kemur til alls þá ætti ég að skila af mér mörkum,“ sagði Haaland. Hér að neðan má sjá öll hundrað mörk hans á hundrað sekúndum. Haaland er sá fljótasti í sögunni til að ná hundrað mörkum í ensku úrvalsdeildinni en það gerði hann í 111 leikjum. Alan Shearer átti metið en hann komst í hundrað í 124 leikjum og Harry Kane þurfti svo 141 leik. Alls hafa 35 leikmenn skorað hundrað mörk í úrvalsdeildinni og var Son Heung-min síðastur á undan Haaland til að ná áfanganum, í apríl 2023. Shearer er enn langmarkahæstur í sögu úrvalsdeildarinnar með 260 mörk. Kane er næstur með 213 og Wayne Rooney er sá þriðji sem náði yfir 200 mörk, með 208 talsins. Mohamed Salah nálgast þessa menn og er með 190 mörk. Enski boltinn heldur áfram að rúlla í dag þar sem sex leikir eru á dagskrá í kvöld. Allir verða í beinni á Sýn Sport. Miðvikudagur 3. desember 19:15 Doc Zone - allir leikirnir í beinni samtímis (Sýn Sport) 19:30 Arsenal - Brentford (Sýn Sport 3) 19:30 Brighton - Aston Villa (Sýn Sport 5) 19:30 Burnley - Crystal Palace (Sýn Sport 6) 19:30 Wolves - Nottingham Forest (Sýn Sport Ísland 3) 20:15 Leeds - Chelsea (Sýn Sport 4) 20:15 Liverpool - Sunderland (Sýn Sport 2) Fimmtudagur 4. desember 20:00 Manchester United - Everton (Sýn Sport) 22:10 Big Ben (Sýn Sport)
Enski boltinn Mest lesið Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Náði að plata Óskar Örn Sport „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Fótbolti Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Fótbolti Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Fótbolti Fleiri fréttir Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Sjá meira