Keishana: Allir sigrar eru yfirlýsing Árni Jóhannsson skrifar 2. desember 2025 21:57 Keishana Washingto á leiðinni upp að körfunni. vísir / Vilhelm Keishana Washington setti Keflvíkinga á bakið í lok leiksins gegn Val í kvöld og keyrði sigurinn yfir línuna. Leikstjórnandinn skoraði 30 stig og voru stigin í lok leiksins hverju öðru mikilvægara. Keflavík vann leikinn 92-95 eftir rafmagnaðar lokamínútur. „
Við bara framkvæmdum það sem þjálfarinn lagði upp með. Það var smá vesen sem þær settu okkur í en við framkvæmdum okkar plan vel og það skilaði sigrinum“, sagði Keishana þegar hún var spurð um hvað Keflavík hafi gert rétt í lok leiksins. Keflavík leiddi 64-79 þegar sjö mínútur voru eftir og leiddu með níu stigum þegar minna en tvær mínútur voru eftir. Valskonur nöguðu forskotið niður en komust ekki nær en þremur stigum þegar upp var staðið. Hvað gerðist hjá Keflavík í lok leiks þegar þetta leit út fyrir að vera þægilegt? „Þetta er leikur áhlaupa. Liðin taka 10-12 stiga áhlaup til skiptis og það var bara það sem gerðist í kvöld. Þegar við fórum á okkar áhlaup þá bjuggumst við við því að þær tækju áhlaup líka sem og þær gerðu. Við náðum bara að skera á það í tæka tíð.“ Er þessi sigur yfirlýsing um eitthvað meira hjá Keflavík? „Allir sigrar eru yfirlýsing.“ Keflavík er á fjögurra leikja sigurgöngu og hafa lagt Grindavík og Val að velli í undanförnum leikjum. Lið sem eru í toppbaráttunni. Hvernig líður leikmönnum Keflavíkur með liðið á þessum tímapunkti? „Okkur líður vel. Við erum að verða samrýmdari og erum á góðum stað. Allar stelpurnar eru að finna hlutverkið sitt og við erum að spila vel saman.“ Keishana var þá spurð út í frammistöðu sína en hún skoraði 30 stig og gaf sjö stoðsendingar. „Mér líður vel með sigurinn. Það skiptir ekki máli hvort ég skori 10 eða 30 stig eða gefi einhverjar stoðsendingar. Svo lengi sem að við vinnum.“
Bónus-deild kvenna Keflavík ÍF Tengdar fréttir Leik lokið: Valur - Keflavík 92-95 | Keflavík vann toppslaginn á Hlíðarenda Valur og Keflavík áttust við í toppslag í 10. umferð Bónus deildar kvenna í körfubolta. Leikurinn olli engum vonbrigðum og var kaflaskiptur og ótrúlega spennandi í lokin. Keflavík innbyrti sigurinn í lokin 92-95. 2. desember 2025 21:00 Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Íslenski boltinn „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Fótbolti Baulað á Trump í New York Körfubolti KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Körfubolti „Hlakka mikið til að ná fleiri áföngum fyrir Ísland“ Golf Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Íslenski boltinn „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ Körfubolti Fleiri fréttir „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sjá meira
Leik lokið: Valur - Keflavík 92-95 | Keflavík vann toppslaginn á Hlíðarenda Valur og Keflavík áttust við í toppslag í 10. umferð Bónus deildar kvenna í körfubolta. Leikurinn olli engum vonbrigðum og var kaflaskiptur og ótrúlega spennandi í lokin. Keflavík innbyrti sigurinn í lokin 92-95. 2. desember 2025 21:00