Stuðningsmaður settur í 35 leikja bann og skyldaður á námskeið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. nóvember 2025 22:15 Stuðningsmenn norska félagsins Viking á góðri stundu en myndin tengist ekki fréttinni beint. Getty/Ingo Wagner Norska fótboltafélagið Viking tekur mjög hart á framkomu stuðningsmanns liðsins í leik í norsku úrvalsdeildinni á dögunum.
Um er að ræða áhorfanda sem lét særandi ummæli falla úr stúku gestaliðsins á Marienlyst-leikvanginum í garð Marcus Mehnert, leikmanns Strømsgodset. „Undanfarnar vikur hefur Viking Fotball gert umfangsmiklar rannsóknir og hefur borið kennsl á einn einstakling sem mun sæta viðurlögum í samræmi við viðbragðsreglur félagsins,“ skrifar félagið á miðla sína. Viðkomandi stuðningsmaður hefur hér með verið útilokaður frá 35 leikjum og þarf auk þess að gangast undir viðhorfsbreytinganámskeið áður en hann fær hugsanlega aftur aðgang að leikjum félagsins. Mehnert brást sjálfur illa við atvikinu í umræddum leik. „Það er allt í lagi að Viking séu góðir og að stuðningsmennirnir séu stoltir af því, en þeir geta sleppt því að kalla fólk homma,“ sagði Marcus Mehnert við TV2. Leikmaður Godset fékk ummælin yfir sig þegar hann var niðri við endalínuna að drekka vatn. Viking hrósar Marcus Mehnert fyrir að hafa látið vita af atvikinu. „Aðeins þannig getum við beint athyglinni að svo mikilvægu máli í norskum fótbolta,“ skrifar félagið á miðla sína.
Norski boltinn Mest lesið Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Náði að plata Óskar Örn Sport „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Fótbolti Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Fótbolti Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Fótbolti Fleiri fréttir Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Sjá meira