Krónprinsinn ætlar að mæta á bikarúrslitaleik Örnu og Sædísar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. nóvember 2025 12:29 Arna Eiríksdóttir fagnar marki Valerenga á móti Roma í Meistaradeildinni. Getty/Domenico Cippitelli Hakon krónprins verður í stúkunni þegar Vålerenga og Rosenborg spila bikarúrslitaleik kvenna í fótbolta á sunnudaginn.
Þarna eru tvö Íslendingalið að mætast þó að Selma Sól Magnúsdóttir hafi ekkert spilað með Rosenborg í ár vegna meiðsla. Í liði Vålerenga eru aftur á móti tvær íslenskar landsliðskonur, þær Sædís Rún Heiðarsdóttir og Arna Eiríksdóttir. Arna er meira að segja að fara spila sinn annan bikarúrslitaleik á árinu því hún fór einnig í bikarúrslit með FH í sumar áður en hún færði sig yfir til Noregs. Hákon krónprins er greinilega mikill fótboltaáhugamaður því hann var í Mílanó á dögunum og sá karlalandslið Noregs tryggja sér sæti á HM með 4-1 sigri á Ítalíu á San Siro. „Norska knattspyrnusambandið er stolt og þakklátt fyrir að geta boðið Hakon krónprins hjartanlega velkominn á bikarúrslitaleikinn milli tveggja af bestu liðum efstu deildarinnar,“ segir Karl-Petter Löken, framkvæmdastjóri norska knattspyrnusambandsins, í yfirlýsingu. Vålerenga er ríkjandi bikarmeistari og mætir Rosenborg þriðja árið í röð í bikarúrslitaleiknum. Árið 2023 vann RBK 1-0 en VIF náði fram hefndum með sömu tölum í fyrra. Úrslitaleikurinn á sunnudaginn á Ullevaal-leikvanginum hefst klukkan 16.00 að norskum tíma.
Norski boltinn Mest lesið Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Náði að plata Óskar Örn Sport „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Fótbolti Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Fótbolti Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Fótbolti Fleiri fréttir Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Sjá meira