Landsliðskonan dæmd í eins leiks bann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. nóvember 2025 13:31 Thea Imani Sturludóttir fær lengri tíma til að jafna sig eftir HM. Vísir/Anton Brink Thea Imani Sturludóttir, leikmaður Íslandsmeistara Vals í Olís-deild kvenna í handbolta, var í dag dæmd í eins leiks bann af Aganefnd Handknattleikssambands Íslands.
Thea Imani er þessa dagana að undirbúa sig fyrir heimsmeistaramót með íslenska landsliðinu en Olís-deildin er komin í frí þangað til um miðjan desember. Thea hlaut útilokun með skýrslu vegna sérstaklega ódrengilegrar hegðunar í leik Vals og ÍR í Olís-deild kvenna þann 12. nóvember 2025. Valur tapaði þeim leik með einu marki, 24-25. Með tilvísun í 10. grein reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann. Aganefnd vekur athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 1. mgr. 11. sömu reglugerðar. Thea fékk rauða spjaldið þegar nokkrar sekúndur voru eftir af leiknum. Valur skoraði jöfnunarmark þegar tólf sekúndur voru eftir og Thea hljóp í gegnum miðjuhringinn og truflaði hraða miðju ÍR. Hún fékk fyrir vikið rautt spjald fyrir og ÍR fékk vítakast en úr því skoraði Sara Dögg Hjaltadóttir sigurmarkið. Thea missir af næsta leik Valsliðsins sem er á móti Stjörnunni 13. desember næstkomandi. Þangað til spilar hún vonandi sem flesta leiki með íslenska A-landsliðinu.
Olís-deild kvenna Valur Mest lesið Sögulegur samningur Víkinga Íslenski boltinn Missti næstum því fingur á móti Liverpool Fótbolti Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur Íslenski boltinn Samningur í höfn: Írar treysta Heimi fyrir EM á heimavelli Fótbolti Mörkin í Meistaradeild: Sjáðu stóru liðin setja upp sýningu Fótbolti Vill ekki falla í sömu gryfju og Svíar Fótbolti Fresta ákvörðun um hugsanlegt bann á Trump Sport Deilan leyst og spilað í Boston Fótbolti Guardiola: Liverpool-liðið hans Klopp er erfiðasta áskorunin en ekki Real Enski boltinn Schmeichel um áfall sonarins: „Vil ekki að þetta endi svona“ Fótbolti Fleiri fréttir Bronslið Dags Sig burstaði Svisslendinga í fyrsta leik eftir EM Frábært að sleppa við austantjaldið Heilluðust af Ölfu Brá á HM og sömdu við hana Mætir með vænt glóðarauga: „Þetta var smá barningur“ Berta Rut snýr heim í Hauka Deildarmeistarar Vals unnu nauman sigur fyrir norðan Uppgjörið: Stjarnan - Fram 34-34 | Stjarnan heldur lífi í fallsætisbaráttunni „Ekki endilega það sem maður vildi“ Leiðtoginn Sigvaldi fer til Þýskalands Alfreð með skýrt svar: „Þeir verða að ráða framhaldinu“ Strákarnir okkar slógu í gegn í Smáralindinni „Allt of snöggur og óvæntur endir“ Hægt að hitta handboltahetjurnar í dag Enginn slaki gefinn Hótar eigin leikmönnum og þjálfurum Ísak dró sig úr hópnum gegn Svíum VIP-miðar í boði til að komast nær strákunum okkar Viggó og Andri fengu skell gegn meisturunum Nýbakaði faðirinn með níu mörk Íslendingaliðið úr leik eftir tap í undanúrslitum Víkingur Reykjavík upp í Olís deildina „Þetta er ekki búið“ Sara Dögg í miklum ham er ÍR styrkti stöðu sína Valur - Fram 32-31 | Risaleikur Lovísu kláraði Fram „Hefði verið leiðinlegt að skora öll þessi mörk og tapa“ Donni drjúgur og Elvar með frábæran leik Selfoss hafði sætaskipti við Stjörnuna á botninum Haukar stöðvuðu sigurgöngu Eyjakvenna Stiven flaug áfram í átta liða úrslit Teitur og Elliði unnu Íslendingaslaginn Sjá meira