Hafnar ásökunum um dónamyndir og segir þveröfugt farið Magnús Jochum Pálsson skrifar 10. nóvember 2025 11:31 Jeremy Renner og Yi Zhou unnu saman að heimildarmynd hennar í sumar en samband þeirra varð síðan meira en faglegt samstarf. Sambandið súrnaði og nú saka þau hvort annað um hótanir og kynferðisleg skilaboð. Getty Leikarinn Jeremy Renner hefur hótað kvikmyndagerðarkonunni Yi Zhou með lögsókn. Ástæðan er ásakanir Zhou um að Renner hafi sent henni óumbeðnar dónamyndir og hótað því að siga landamæraeftirlitinu á hana. Renner segir þveröfugt farið, hún hafi herjað á hann og sent honum urmul óviðeigandi skilaboða.
Dægurmálamiðillinn TMZ greinir frá málinu og hefur undir höndunum svokallað „cease and desist“ kröfubréf sem lögfræðingurinn Marty Singer sendi á Zhou fyrir hönd Renner. Slík bréf fela í sér kröfu um að viðtakandinn hætti ákveðinni hegðun annars verði hann lögsóttur. Í bréfinu kemur fram að Renner hafi samþykkt að taka þátt í heimildarmyndinni Chronicles of Disney eftir Zhou en á fyrsta fundi þeirra saman í júlí síðastliðnum hafi hún reynt við hann. Þau hafi í kjölfarið átt „stutt kynni“ sem hafi verið með samþykki beggja. Jeremy Renner gaf út sjálfsævisögu sína í vor.Getty Næst þegar hittust í ágúst hafi Renner tjáð Zhou að hann hefði ekki áhuga á ástarsambandi með henni og sett hana í gestaherbergið þá nóttina. Eftir það heldur Renner því fram að Zhou hafi sent honum mörg hundruð kynferðisleg skilaboð þar sem sagðist vilja vera með honum og krafðist kynlífs. Renner segir jafnframt að Zhou hafi hótað að „skaða hann opinberlega“ nema hann samþykkti að kynna heimildarmynd hennar og láta sem þau væru par. Þá neitar Renner því að hafa talsett gervigreindar-teiknimynd Zhou líkt og hún hefur haldið fram. Loks sagði Renner að ef Zhou myndi ekki hætta að að dreifa „klámfengnum lygum“ og misnota nafn hans muni hún finna fyrir lagalegum afleiðingum og hætta á því að tapa milljónum í skaðabætur. Suðaði, sendi klámfengið efni og hótaði henni með ICE Zhou birti fjölda yfirlýsinga á Instagram-síðu sinni í síðustu viku þar sem hún greindi frá ásökunum í garð leikarans og rakti samband þeirra frá því í sumar. Zhou lýsti því að þau hefðu hafið samstarf við heimildarmynd hennar en hann hafi ítrekað reynt við hana og sent á hana klámfengnar myndir og myndbönd. Á endanum hafi Renner tekist að sannfæra Zhou um að fara á stefnumót saman. Eftir það hafi samstarfið súrnað og þegar hún setti honum fótinn fyrir dyrnar hafi hann hótað að siga ICE, tolla- og landamæraeftirliti Bandaríkjanna, á hana. Zhou sakar Renner um ýmislegt misjafnt. Zhou ræddi við TMZ vegna umfjöllunarinnar og sagðist hún sjálf þegar hafa hótað Renner lögsókn í þrígang með „cease and desist“ bréfum. TMZ fékk afrit af gögnunum þar sem Zhou sakar Renner um að hafa sent sér kynferðisleg skilaboð og óskað eftir sambærilegu efni frá henni sem olli henni „óþægindum og vanlíðan“. Zhou varaði Renner við því að dreifa ekki lygum um hana, hætta að senda henni kynferðisleg skilaboð og hætta að hóta, áreita og reyna að fjárkúga hana ellegar myndi hún fara með hann fyrir dómara.
Bandaríkin Hollywood Samfélagsmiðlar Mest lesið Bati hjálpar öðrum: „Hann var með geðsjúkdóm og leiddist út í fíkn“ Áskorun Eins og í tannlæknastól án deyfingar: Dauðar laglínur á Myrkum músíkdögum Gagnrýni Sigga Ózk keppir í Ungfrú Íslandi Lífið Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Lífið Krakkatían: Gott kvöld, handboltinn og Tene Lífið Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Lífið „Með rauf á rassi ef mér verður brátt í brók“ Tíska og hönnun Óbilandi trú á eigin ágæti Gagnrýni Ellefu milljónir fyrir óskrifaða óperu Menning Í krabbameinsmeðferð og fæðingarorlofi á sama tíma Lífið Fleiri fréttir Dragi úr trúverðugleika Eddunnar og útiloki fagfólk Leikið sjónvarpsefni aftur hluti af Eddunni Segir sig frá hlutverkinu vegna óánægju með upprunann Ólafur Darri verður Þór Sækir um skilnað frá Schneider Kynlífssena sautján ára stúlku hafi splundrað samstarfi bræðranna Leo og félagar hlutu flestar tilnefningar Tíminn og vatnið frumsýnd á Sundance: „Viska afa í Teigó sigraði hjörtu þeirra“ Sinners slær met yfir flestar Óskarstilnefningar Balti tæklar veðmálasvindl með Wahlberg Þau eru tilnefnd fyrir verstu kvikmyndagerð síðasta árs Sveppi, Edda og Villi Neto keppa í Taskmaster Kvikmyndirnar sem beðið er eftir 2026 Maðurinn sem vann með Elton John, ABBA og Donnu Summer Fáum við einn þátt í viðbót af Stranger Things? Blaðri því út um allan bæ að hann sé næsti Bond Béla Tarr er látinn Óttast að kvikmyndahús endi eins og djassklúbbar Játaði ást sína á Jenner Marvel-stjarna varð fyrir heilaskaða Enduðu Stranger Things í Þjórsárdal Sjá meira