Andrew sviptur síðustu hernaðartigninni Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 2. nóvember 2025 13:20 Andrew er ekki lengur Andrés prins. EPA Varnarmálaráðuneyti Breta vinnur að því að svipta Andrew Mountbatten Windsor síðustu hernaðartign sinni. Andrew, sem var áður þekktur sem Andrés prins, var sviptur prins-titli sínum fyrr í vikunni.
Andrew er yngri bróðir Karls Bretakonungs en á fimmtudag var tilkynnt að hann fengi ekki lengur að halda titlinum prins og þyrfti að yfirgefa heimilið sitt, Royal Lodge, þar sem hann hefur búið síðustu áratugi. Nú vinnur varnarmálaráðuneytið að því að svipta Andrew heiðursnafnbótinni varaaðmíráll í breska flotanum. Hann gaf upp allar aðrar nafnbætur í tengslum við herinn árið 2022 þegar hann var ásakaður um að hafa framið kynferðisbrot. „Konungurinn hefur gefið í skyn að þetta væri skref sem við ættum að taka og við erum að gera það núna,“ sagði John Healey, varnarmálaráðherra Breta í samtali við breska ríkisútvarpið. Ástæðan fyrir því að Andrew hefur verið sviptur öllum titlum eru tengsl hans við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein. Að auki ásakaði Viginía Giuffre Andrew fyrir að hafa brotið á sér þegar hún var á táningsaldri. Andrew hefur alltaf neitað sök. Andrew starfaði fyrir flota breska hersins í 22 ár og barðist í Falklands-stríðinu.
Mál Andrésar prins Bretland Kóngafólk Mál Jeffrey Epstein Tengdar fréttir Andrés ekki lengur prins og látinn yfirgefa heimili sitt Andrés, yngri bróðir Karls Bretakonungs hefur nú verið sviptur prins-titli sínum og þarf að yfirgefa hið sögulega Royla Lodge í grennd við Windsor kastala, hvar hann hefur búið síðustu áratugi. 31. október 2025 06:58 Andrés prins afsalar sér öllum titlum í kjölfar ásakana Andrés prins hefur afsalað sér öllum titlum og heiðursmerkjum, þeirra á meðal hertogatitlinum. Yfirlýsingin kemur í kjölfar umfjöllunar um vinskap hans við látna barnaníðinginn Jeffrey Epstein og meintan kínverskan njósnara. 17. október 2025 18:15 Demókratar vilja yfirheyra Andrew Fjórir Demókratar í rannsóknarnefnd á vegum bandaríska þingsins sem fer með rannsókn Epstein málsins, vilja fá að yfirheyra Andrew Mountbatten Windsor um tengsl hans við Epstein. Nefndinni er stýrt af Repúblikönum sem hafa ekki gefið upp hvort þeir taki undir kröfuna. 1. nóvember 2025 10:19 Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Sjá meira
Andrés ekki lengur prins og látinn yfirgefa heimili sitt Andrés, yngri bróðir Karls Bretakonungs hefur nú verið sviptur prins-titli sínum og þarf að yfirgefa hið sögulega Royla Lodge í grennd við Windsor kastala, hvar hann hefur búið síðustu áratugi. 31. október 2025 06:58
Andrés prins afsalar sér öllum titlum í kjölfar ásakana Andrés prins hefur afsalað sér öllum titlum og heiðursmerkjum, þeirra á meðal hertogatitlinum. Yfirlýsingin kemur í kjölfar umfjöllunar um vinskap hans við látna barnaníðinginn Jeffrey Epstein og meintan kínverskan njósnara. 17. október 2025 18:15
Demókratar vilja yfirheyra Andrew Fjórir Demókratar í rannsóknarnefnd á vegum bandaríska þingsins sem fer með rannsókn Epstein málsins, vilja fá að yfirheyra Andrew Mountbatten Windsor um tengsl hans við Epstein. Nefndinni er stýrt af Repúblikönum sem hafa ekki gefið upp hvort þeir taki undir kröfuna. 1. nóvember 2025 10:19