Ljóst að D66 varð stærri en flokkur Wilders Atli Ísleifsson skrifar 31. október 2025 12:56 Hinn 38 ára Rob Jetten er leiðtogi hins frálslynda miðjuflokks, D66. Flest bendir til að hann verði næsti forsætisráðherra Hollands. AP Frjálslyndi miðjuflokkurinn D66 hlaut flest atkvæði í hollensku þingkosningunum sem fram fóru á miðvikudaginn. Hollenskir fjölmiðlar greindu frá nýjustu tölum upp úr hádegi og er ljóst, þegar búið er að telja nær öll atkvæði, að Frelsisflokkurinn, undir stjórn Geert Wilders, getur ekki fengið fleiri atkvæði en D66.
Samkvæmt nýjustu tölum er D66 með naumt forskot á Frelsisflokkinn, um fimmtán þúsund atkvæði. Frelsisflokkinn, sem hefur lengi barist gegn komu múslíma til landsins, sleit ríkisstjórnarsamstarfi í sumar sem varð til þess að boðað var til þriðju þingkosninganna í landinu á síðustu fjórum árum. Líklegt þykir að leiðtogi D66, hinn 38 ára Rob Jetten, muni nú reyna að mynda ríkisstjórn. Takist honum það verður hann yngsti forsætisráðherrann í sögu landsins. Spár gera nú ráð fyrir að D66 og Frelsisflokkurinn muni báðir ná 26 mönnum á þing, en alls sitja 150 þingmenn á hollenska þinginu. Möguleiki er á að D66 geti náð einu þingsæti til viðbótar og þar með ná inn 27 mönnum, en reiknað er með að talningu ljúki á mánudaginn. Frelsisflokkurinn mældist stærstur í könnunum fyrir kosningarnar en D66 var á mikilli siglingu á lokasprettinum og vann sigra í Rotterdam, Haag og Utrecht svo dæmi séu tekin. Núverandi tölur benda til þess að alls fimmtán flokkar nái mönnum inn á þing. Þriðji stærsti flokkurinn er VVD sem mælist nú með 22 þingmenn inni. Græni vinstriflokkurinn mælist með tuttugu menn inni, Kristilegir demókratar átján og JA 21 með níu.
Kosningar í Hollandi Holland Tengdar fréttir Útlit fyrir að hnífjafnt verði í Hollandi í fyrsta skipti Aðeins örfáum þúsundum atkvæða munar á hægrijaðarflokki Geerts Wilders og miðflokknum D66 þegar 98 prósent atkvæða hafa verið talin eftir þingkosningarnar í Hollandi í gær. Þetta yrði í fyrsta skipti sem tveir stærstu flokkarnir á þingi yrðu jafnstórir og er það talið geta hægt á stjórnarmyndun eftir kosningar. 30. október 2025 09:33 Mest lesið Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Innlent Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Innlent Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Friðarsamkomulag verði undirritað á morgun Erlent Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Innlent Límdu efnin á fætur sína Innlent Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Innlent Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Fleiri fréttir Friðarsamkomulag verði undirritað á morgun „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Samþykkt friðarsamkomulag liggi fyrir Dregur umdeildar skýrslur um Havana-heilkennið til baka Facebook lá niðri Kaninn pakkar saman í Evrópu Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heimsstyrjöldin Hæstiréttur bannar Alabama að taka menn af lífi með köfnunarefni Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Vilja lækka sakhæfisaldur um eitt ár í stað tveggja Aflýsir kröftugu árásunum Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Rýmdu hluta Pentagon vegna „loftgæðafráviks“ Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vesturbakkanum Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Sjá meira
Útlit fyrir að hnífjafnt verði í Hollandi í fyrsta skipti Aðeins örfáum þúsundum atkvæða munar á hægrijaðarflokki Geerts Wilders og miðflokknum D66 þegar 98 prósent atkvæða hafa verið talin eftir þingkosningarnar í Hollandi í gær. Þetta yrði í fyrsta skipti sem tveir stærstu flokkarnir á þingi yrðu jafnstórir og er það talið geta hægt á stjórnarmyndun eftir kosningar. 30. október 2025 09:33