Útlit fyrir nauman sigur frjálslyndra og fyrsta samkynheigða forsætisráðherra landsins Agnar Már Másson skrifar 29. október 2025 23:54 Rob Jetten, formaður D66, á kosningafundi eftir að útgönguspár lágu fyrir. AP Frjálslyndi D66-flokkurinn fær samkvæmt útgönguspám flest sæti á hollenska þinginu. Þannig gæti flokksformaðurinn Rob Jetten orðið landsins yngsti og fyrsti opinberlega samkynhneigði forsætisráðherra. Á sama tíma hefur Frelsisflokkur Geert Wilders tapað þriðjungi sinna þingsæta samkvæmt könnunum.
Hollendingar gengu í dag að kjörborðinu þar sem haldnar eru þriðju þingkosningarnar í landinu á fjórum árum eftir að slitnaði úr ríkisstjórn Geert Wilders. Kannanir bentu til þess að Frelsisflokkur Wilders yrði stærstur en útgönguspár segja aðra sögu. Alls eru 150 þingsæti en samkvæmt útgönguspám, sem Guardian greinir frá, myndu 15 flokkar fá sæti inni á þingi Hollendinga. Þar af hlyti D66 um 27 sæti. Þannig þarf aðeins 0,67 prósent atkvæða til að ná þingmanni inn. Verði þetta niðurstaðan yrði þetta sögulegur sigur fyrir flokkinn en hann hlaut aðeins níu sæti í síðustu kosningum árið 2023. Auk þess er þetta áfall fyrir Frelsisflokkinn sem hlýtur samkvæmt þessu 25 sæti, en flokkur Wilders hlaut 37 sæti í síðustu kosningum. Á sama tíma hafa flestir stærri flokkar útilokað samstarf með Frelsisflokknum, þannig að jafnvel þótt hann ynni væri nánast öll von úti um að hann gæti myndað ríkisstjórn. Flokkurinn er afar mótfallinn flæði innflytjenda inn í landið. D66 er frjálslyndur og evrópusinnaður og svipar að mörgu leyti til Viðreisnarflokksins á Íslandi en þykir þó lengra til vinstri en Viðreisn.
Holland Kosningar í Hollandi Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira