Stórar breytingar á Evrópukeppnum í handbolta Sindri Sverrisson skrifar 22. október 2025 09:01 Gísli Þorgeir Kristjánsson hefur tvisvar unnið Meistaradeild Evrópu með Magdeburg og í bæði skiptin verið valinn bestur í úrslitunum í Köln. Frá og með næstu leiktíð tekur keppnin breytingum en úrslitin ráðast sem fyrr í Köln. Getty/Jürgen Fromme Handknattleikssamband Evrópu hefur ákveðið að gera umtalsverðar breytingar á Meistaradeild og Evrópudeild karla frá og með næstu leiktíð.
Margir af bestu handboltamönnum Íslands spila í þessum keppnum og íslensk félagslið hafa einnig verið að gera sig gildandi í Evrópudeildinni á undanförnum árum. Nú hefur verið ákveðið að fjölga liðum í Meistaradeildinni úr 16 í 24 og munu þau byrja á að spila í sex fjögurra liða riðlum. Efstu tvö lið úr hverjum riðli komast svo áfram í aðalhluta Meistaradeildarinnar, þar sem spilað verður í tveimur sex liða riðlum. Efstu fjögur lið úr hvorum riðli komast svo áfram í 8-liða úrslit og keppninni lýkur sem fyrr með fjögurra liða úrslitaveislu í Köln. Taplið úr Meistaradeild bætast í Evrópudeild Hætt verður með undankeppni í Evrópudeildinni og munu þess í stað 32 lið hefja leik í átta fjögurra liða riðlum. Tvö lið komast áfram úr hverjum riðli í útsláttarkeppni en þangað koma líka liðin tólf sem enduðu í 3. eða 4. sæti í fyrri riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Alls hefja því 28 lið leik í útsláttarkeppninni, þar sem leikið verður heima og að heiman, og komast 14 sigurlið áfram í 16-liða úrslit. Við þau bætast svo liðin tvö sem enda í 5. sæti í seinni riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Það verður svo ákveðið í desember hvernig aðildarþjóðum EHF verður úthlutað sætum í keppnunum.
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Evrópudeild karla í handbolta Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira