Golf

Ís­lenski Tígurinn vann æsi­spennandi mót í Mississippi

Sindri Sverrisson skrifar
Gunnlaugur Árni Sveinson veitti eiginhandaráritun eftir sigurinn í gær.
Gunnlaugur Árni Sveinson veitti eiginhandaráritun eftir sigurinn í gær.

Íslenski landsliðskylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson fagnaði sigri á sterku háskólamóti í Bandaríkjunum í gær. Foreldrar hans voru á svæðinu og fylgdust með æsispennandi lokakafla.

Um var að ræða Fallen Oak golfmótið, þriggja daga mót í Mississippi, og hóf Gunnlaugur mótið af miklum krafti með því að spila á 66 höggum, eða sex undir pari.

Á Instagram-síðu LSU-golfliðsins sem Gunnlaugur spilar fyrir var talað um stjörnuframmistöðu hjá „Íslenska Tígrinum“, með vísan í að liðið heitir LSU Tigers, en mögulega var líka verið að líkja Gunnlaugi við Tiger Woods eftir þennan magnaða fyrsta hring.

Hann lék hring tvö á 70 höggum en tryggði sér svo sigurinn á mótinu með því að leika lokahringinn á 67 höggum, og endaði því samtals á -13 höggum.

Gunnlaugur Árni Sveinsson heldur áfram að gera frábæra hluti í Bandaríkjunum.

William Jennings frá Alabama-háskóla og Max Herendeen frá Illinois-háskóla enduðu aðeins höggi á eftir Gunnlaugi, og voru þeir Jennings og Gunnlaugur jafnir fyrir lokaholuna en þar fékk Jennings skolla og Gunnlaugur par.

Foreldrar Gunnlaugs voru á svæðinu og urðu því vitni að þessum dísæta sigri sem er annar sigur Gunnlaugs á bandarísku háskólamóti. Andrés Davíðsson, þjálfari Gunnlaugs hjá GKG, var einnig viðstaddur að því er fram kemur á golf.is.

Heldur áfram upp heimslistann

Gunnlaugur hefur átt frábært haust því áður hafði hann náð 2. sæti á móti fyrir mánuði síðan og endað í 10. og 11. sæti á öðrum mótum.

Hann er sem stendur í 13. sæti heimslista áhugakylfinga en ætti að taka stökk upp á við á næstunni eftir árangurinn í Mississippi.

Skóli Gunnlaugs, Louisiana State University, deildi efsta sætinu í liðakeppninni í Mississippi með Alabama-háskólanum, eftir að hafa misst niður ellefu högga forystu á lokadeginum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×