Mancini og Dyche á óskalista Forest Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. október 2025 11:30 Sjö ár eru síðan Roberto Mancini stýrði félagsliði síðast. getty/Masashi Hara Í annað sinn á tímabilinu þarf Nottingham Forest að finna sér nýjan knattspyrnustjóra. Fyrrverandi stjóri Manchester City er meðal þeirra sem kemur til greina.
Ange Postecoglou var rekinn frá Forest eftir 0-3 tap fyrir Chelsea á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í gær. Postecoglou var ráðinn stjóri Forest 9. september eftir að Nuno Espírito Santo var rekinn. Postecoglou var aðeins 39 daga í starfi hjá Forest. Hann stýrði liðinu í átta leikjum. Enginn þeirra vannst, tveir enduðu með jafntefli og sex töpuðust. Hinn umdeildi eigandi Forest, Evangelos Marinakis, þarf því að finna þriðja stjórann á tímabilinu sem er aðeins tveggja mánaða gamalt. Samkvæmt heimildum BBC hefur Forest sett sig í samband við Sean Dyche og þá er Roberto Mancini einnig á blaði hjá Nottingham-félaginu. Sean Dyche stýrði Burnley í áratug og var svo með Everton í tvö ár.getty/Robbie Jay Barratt Dyche var rekinn frá Everton í janúar. Hann var lengi við stjórnvölinn hjá Burnley og kom liðinu meðal annars í Evrópukeppni. Mancini stýrði síðast landsliði Sádi-Arabíu en hætti þar fyrir ári. Hann gerði ítalska landsliðið að Evrópumeisturum 2021 og vann deildartitla með Inter og City. Mancini hefur ekki stýrt félagsliði síðan hann var við stjórnvölinn hjá Zenit í St. Pétursborg á árunum 2017-18. Forest er í 18. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með fimm stig eftir átta leiki. Liðið endaði í 7. sæti á síðasta tímabili sem var besti árangur þess í þrjátíu ár. Næsti leikur Forest er gegn Bournemouth eftir viku.
Enski boltinn Tengdar fréttir Postecoglou rekinn Ange Postecoglou hefur verið sagt upp störfum sem knattspyrnustjóri Nottingham Forest. 18. október 2025 13:51 Hitnar enn undir Postecoglou Pressan á Ange Postecoglou, knattspyrnustjóra Nottingham Forest, eykst enn en liðið tapaði 0-3 fyrir Chelsea í fyrsta leik 8. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í dag. 18. október 2025 13:20 Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Víkingur Götu - Stjarnan | Garðbæingar í góðum málum Fótbolti Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Íslenski boltinn Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Fleiri fréttir Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Sjá meira
Postecoglou rekinn Ange Postecoglou hefur verið sagt upp störfum sem knattspyrnustjóri Nottingham Forest. 18. október 2025 13:51
Hitnar enn undir Postecoglou Pressan á Ange Postecoglou, knattspyrnustjóra Nottingham Forest, eykst enn en liðið tapaði 0-3 fyrir Chelsea í fyrsta leik 8. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í dag. 18. október 2025 13:20