Skjátlaðist um Palmer sem verður lengi frá keppni Sindri Sverrisson skrifar 17. október 2025 10:31 Enzo Maresca þarf að stóla á aðra en Cole Palmer næstu vikurnar. EPA/PETER POWELL Chelsea verður að spjara sig án Cole Palmer í að minnsta kosti sex vikur til viðbótar, vegna nárameiðsla sem hann glímir við.
Enzo Maresca, knattspyrnustjóri Chelsea, staðfesti þetta á blaðamannafundi í dag þegar hann fór yfir meiðslastöðuna hjá Chelsea. Blaðakona spurði Maresca sérstaklega út í stöðuna á Palmer, í ljósi þess að Maresca hafði sagst, fyrir landsleikjahléið, vonast til þess að Palmer gæti spilað núna um helgina. Chelsea sækir Nottingham Forest heim í hádeginu á morgun. „Ég hafði rangt fyrir mér. Því miður þarf hann að vera frá keppni í sennilega sex vikur í viðbót,“ sagði Maresca. „Við reynum bara að vernda Cole eins og við getum og mikilvægast er að hann verði fullkomlega klár í slaginn þegar hann mætir aftur,“ sagði Maresca. Palmer missir af fjölda leikja og verður líklega ekki með fyrr en síðustu helgina í nóvember, þegar Chelsea tekur á móti Arsenal í stórleik. Áður spilar liðið meðal annars við Ajax og Barcelona í Meistaradeild Evrópu og grannaslag við Tottenham 1. nóvember. Levi Colwill og Liam Delap eru eftir sem áður frá keppni vegna meiðsla og Benoit Badiashile verður frá keppni fram í desember vegna vöðvameiðsla, sagði Maresca. Vafi er svo um stöðuna á fleirum: „Moi [Caicedo], Enzo [Fernandez] og [Joao] Pedro tóku ekki þátt í æfingu í gær. Við sjáum til hvort þeir verði með í dag. Reece [James] er í lagi, hann er alveg klár í slaginn,“ sagði Maresca.
Enski boltinn Mest lesið „Ég er bara í brjáluðu skapi“ Íslenski boltinn Infantino veðurtepptur og Spánn hætti við æfingu Fótbolti Saka með þrennu í ótrúlegum bronsleik Fótbolti Búið spil fyrir Messi og félaga? Drake veðjaði á argentínskan sigur Fótbolti Maður dagsins á HM: Stjörnustrákurinn vildi spila meira Fótbolti Vildi fá Nyland fyrir HM: „Það verður ansi erfitt að fá hann núna“ Fótbolti „Snerist um að færa þjóðinni besta árangurinn á HM í sextíu ár“ Fótbolti McIlroy pirraður á athyglissjúkum DeChambeau Golf Messi þarf að minnsta kosti tvennu til að taka fram úr Mbappé Fótbolti „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann Fótbolti Fleiri fréttir Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Sjá meira