Þingmaður hyggst nafngreina grunaðan í 55 ára morðmáli Hólmfríður Gísladóttir skrifar 17. október 2025 09:06 Umfangsmikil leit var gerð að Grimmer. Getty/Fairfax Media Ástralskur þingmaður hefur heitið því að nafngreina mann sem grunaður er um að hafa numið stúlku á brott fyrir meira en 50 árum, ef hann veitir ekki upplýsingar um málið.
Hin þriggja ára Cheryl Grimmer var numin á brott á Fairy Meadow strönd í Wollongong í Nýju Suður Wales árið 1970. Maður var handtekinn árið 2017, grunaður um að hafa myrt stúlkuna en sýknaður árið 2019, eftir að ákæruvaldinu var meina að leggja fram ítarlega játningu sem hann gerði þegar hann var unglingur. Maðurinn hefur verið nefndur Mercury en raunverulegu nafni hans haldið leyndu, þar sem hann var undir lögaldri þegar meint brot áttu sér stað. Fjölskylda Grimmer krefst svara og vill meðal annars að Mercury útskýri hvernig hann bjó yfir upplýsingum sem fram komu í játningunni og hvort hún var sönn. „Það er komið nóg,“ sagði Ricki Nash, bróðir Grimmer, í samtali við fjölmiðla í morgun. „Við viljum fá að vita sannleikann.“ Þingmaðurinn Jeremy Buckingham, sem hefur stutt fjölskylduna, hefur lofað því að hann muni nafngreina manninn opinberlega á fimmtudaginn í næstu viku þegar þing kemur aftur saman, ef hann svarar ekki spurningum fjölskyldunnar. Buckingham nýtur friðhelgi sem þingmaður. Leiða má líkur að því að málið hafi legið sérstaklega þungt á Nash en Grimmer var í umsjá hans þegar hún hvarf. Hún hafði hlaupið inn á kvennaklósett á ströndinni og neitaði að koma út. Nash kunni ekki við að fara inn á salernið og skrapp frá til að ná í móður sína en þegar þau komu aftur var litla systir hans horfin. Fjölskyldan hefur sakað lögreglu um að klúðra rannsókn málsins. Hér má finna umfjöllun BBC.
Ástralía Erlend sakamál Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Sjá meira