Annar starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins hættir Árni Sæberg skrifar 13. október 2025 16:43 Ólafur Adolfsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. vísir/ívar Kristófer Már Maronsson sagði upp störfum sem starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins í lok ágúst. Tveimur öðrum starfsmönnum var sagt upp störfum nýverið og aðeins fimm eru eftir. Þingflokksformaðurinn er nú í starfsmannaleit.
Ólafur Adolfsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, staðfestir í samtali við Vísi að Kristófer Már hafi sagt upp störfum. Einbeitir sér að eigin rekstri Kristófer Már segir að hann hafi ákveðið að segja upp störfum til þess að einbeita sér að eigin rekstri en hann hefur verið í hálfu starfi sem starfsmaður þingflokksins meðfram því að reka fyrirtækið Pareto lausnir. Hann hefur verið búsettur á Sauðárkróki frá árinu 2022. Hann hafi lengi velt því fyrir sér að taka stökkið í sjálfstæðan rekstur og hafi tekið ákvörðun þess efnis í ágúst. Hann hafi verið að bíða eftir tækifæri til að tilkynna Hildi Sverrisdóttur, þáverandi þingflokksformanni, um ákvörðun sína í næstu ferð suður en þá hafi Ólafur verið tekinn við. Ákvörðunin tengist þeim breytingum því ekki neitt. Hann sé nú að vinna niður þriggja mánaða uppsagnarfrest. Kristófer Már hefur látið til sín taka í umræðu um menntamál. Hér má sjá hann í Pallborðinu á Vísi, þar sem grunnskólamál voru rædd.Vísir/Vilhelm Nú sé nóg að gera í sjálfstæða rekstrinum til þess að einblína á hann, auk þess sem það hafi tekið á að ferðast til og frá vinnu við Austurvöll en hann býr sem áður segir á Sauðárkróki, ásamt þremur börnum á aldrinum þriggja, fimm og átta ára, sem hann hlakki til að verja meiri tíma með. Mikið um breytingar Í september var greint frá því að tveimur starfsmönnum þingflokks Sjálfstæðisflokksins hefði verið sagt upp. Það voru þeir Andri Steinn Hilmarsson og Viktor Ingi Lorange. Um var að ræða aðra breytinguna á skömmum tíma hjá þingflokknum, sem nýlega hafði skipt um þingflokksformann. Þá hafa verið gerðar enn frekari breytingar á mannauði Sjálfstæðisflokksins sjálfs en síðustu mánuði hafa nýr framkvæmdastjóri og nýr fjármálastjóri tekið við störfum í Valhöll. Leita fleiri starfsmanna Eftir brotthvarf þeirra Andra Steins, Kristófers Más og Viktors Inga eru aðeins fjórir starfandi fyrir þingflokk Sjálfstæðisflokksins og einn aðstoðarmaður Guðrúnar Hafsteinsdóttur formanns. Ólafur gengst við því að smávægileg mannekla sé nú á skrifstofu Sjálfstæðismanna í þinginu og segir að flokkurinn vildi helst fá fleiri starfsmenn til liðs við sig og fullnýta heimild til ráðningar starfsmanna. Hann segir þó að stundum þurfi að sníða stakk eftir vexti og bendir á að enn séu starfsmenn á uppsagnarfresti. „Þetta er skemmtilegt starf, lifandi og það er mikil dýnamík í þessu. Þannig að ég á nú von á því að okkur muni ganga fljótt og vel að ráða í þær stöður sem við ætlum að ráða í.“ Vert er að taka fram að aðeins einn flokkur, Miðflokkurinn, er með fleiri starfsmenn en Sjálfstæðisflokkurinn, eða sjö stykki. Samfylkingin er með fimm, Flokkur fólksins og Viðreisn með fjóra og Framsókn með þrjá. Alveg sama um gamlar væringar Þá segir Ólafur að honum þyki áhugi fjölmiðlamanna og fleiri á starfsmannamálum Sjálfstæðisflokksins allrar athygli verður. „Ég ætla að leyfa mér að segja að menn eru dálítið uppteknir af gömlum væringum. Ég segi það og hef sagt áður, mér er bara nákvæmlega sama um það ef sá sem ég tel hæfastan hafi jafnvel unnið fyrir annan flokk. Þetta er athyglisvert og ég vildi að það væri sami áhugi á öðrum.“
Sjálfstæðisflokkurinn Mannauðsmál Alþingi Mest lesið Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Innlent Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Innlent Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Innlent Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Innlent „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Innlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Erlent Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Innlent Íranir enn vígreifir Erlent Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli Innlent Fleiri fréttir Fundar með lækni frá Úkraínu sem þjónar til borðs á Íslandi Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Einn á sjúkrahús eftir árekstur á Hringbraut Hafa dregið rafbyssurnar fram hundrað sinnum Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Ræddu þjóðaratkvæði fram á kvöld og halda áfram í dag Áfram skúrir í dag Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Oddvitinn lætur gott heita í Mosfellsbæ Evrópuhiti, Bjarni Ben og bílastæði Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Þau verða í efstu tíu sætunum á lista Pírata Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Hefur setið tvo af þremur borgarstjórnarfundum frá því að hann skipti um lið Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Bein útsending: ESB-ballið byrjar á Alþingi Niðurrif ónýtra húsa í Grindavík hafið Landbúnaðarstefna ESB henti íslenskum landbúnaði illa Enginn sem hefur stjórn á því hvar olíuverð endar Bjóða upp á tjaldsvæði inni Tekist á um þjóðaratkvæði á þingi í dag og olíuverð í hæstu hæðum Ætlar ekki að taka úrslitunum sem höfnun Sjá meira