„Ætla mér að spila fyrir íslenska landsliðið í framtíðinni“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. október 2025 09:02 Blær Hinriksson varð bikarmeistari með Aftureldingu fyrir tveimur árum. vísir/vilhelm Ég ætla mér að spila fyrir íslenska landsliðið í framtíðinni. Þetta segir Blær Hinriksson, handboltamaður hjá Leipzig. Hann segist hafa tekið skrefið í þýska boltann til að auka möguleika sína á að komast í landsliðið.
Ég ætla mér að spila fyrir íslenska landsliðið í framtíðinni. Þetta segir Blær Hinriksson, handboltamaður hjá Leipzig. Hann segist hafa tekið skrefið í þýska boltann til að auka möguleika sína á að komast í landsliðið. Blær gekk í raðir Leipzig frá Aftureldingu í sumar eftir að hafa leikið með Mosfellingum í fimm ár. Leipzig hefur farið illa af stað á tímabilinu en Blær hefur látið að sér kveða og er í hópi markahæstu leikmanna þýsku deildarinnar. Hinn 24 ára Blær hefur ekki enn verið valinn í íslenska landsliðið en það er draumurinn hjá þessum öfluga handboltamanni. „Já, klárlega og ég ætla mér að spila fyrir landsliðið í framtíðinni. Það er bara mitt markmið og ég vinn hart að því. Það er líka ástæðan af hverju ég fór í atvinnumennsku,“ sagði Blær í samtali við Vísi. „Minn hvati og minn vilji til að spila fyrir landsliðið er það mikill að ég þarf að vera að spila í bestu deildum í heimi til að vera valinn því það er valinn maður í hverri stöðu. Þannig að hluti af minni vinnu áður fyrr og núna er til að komast í landsliðið.“ En er hann bjartsýnn á að verða valinn í landsliðið fyrr en seinna? „Ég vona það. En svo er maður líka bara að vinna á hverjum degi að því að það verði raunveruleikinn. Svo á endanum er það þjálfarar landsliðsins sem ákveða það. Þannig ég verð bara að gera mitt besta og halda áfram að gera það,“ sagði Blær. Viðtal við Blæ úr Sportpakka Sýnar má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Þýski handboltinn Landslið karla í handbolta Tengdar fréttir Handboltinn í fyrsta sæti en tilbiður enn listagyðjuna Þrátt fyrir að Blær Hinriksson sé orðinn atvinnumaður í handbolta hefur hann ekki sagt skilið við leiklistina. Handboltinn er þó í fyrsta sæti sem stendur. 10. október 2025 12:01 Draumadeildin staðið undir væntingum Handboltamanninn Blæ Hinriksson dreymdi lengi um að spila í þýsku úrvalsdeildinni. Sá draumur hefur nú ræst og hann segir að draumadeildin hafi staðið undir væntingum. Blær bíður þó óþreyjufullur eftir fyrsta sigrinum með Leipzig sem hefur farið illa af stað á tímabilinu. 10. október 2025 10:01 Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Körfubolti Fimmtán leikmenn meiddir: Er lengra landsleikjahlé betra eða verra? Sport „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ Fótbolti Fleiri fréttir „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Sjá meira
Handboltinn í fyrsta sæti en tilbiður enn listagyðjuna Þrátt fyrir að Blær Hinriksson sé orðinn atvinnumaður í handbolta hefur hann ekki sagt skilið við leiklistina. Handboltinn er þó í fyrsta sæti sem stendur. 10. október 2025 12:01
Draumadeildin staðið undir væntingum Handboltamanninn Blæ Hinriksson dreymdi lengi um að spila í þýsku úrvalsdeildinni. Sá draumur hefur nú ræst og hann segir að draumadeildin hafi staðið undir væntingum. Blær bíður þó óþreyjufullur eftir fyrsta sigrinum með Leipzig sem hefur farið illa af stað á tímabilinu. 10. október 2025 10:01