Varaforseti EHF handtekinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. október 2025 13:00 Predrag Boskovic á fundi NATO þegar hann var varnarmálaráðherra Svartfjallalands. EPA/STEPHANIE LECOCQ Varaforseti Handknattleikssambands Evrópu er ekki í alltof góðum málum en hann er grunaður um aðild að glæpasamtökum.
Varaforseti EHF heitir Predrag Boskovic og er 53 ára gamall Svartfellingur. Hann hefur verið varaforseti EHF síðan árið 2016. Boskovic er einnig þingmaður í Svartfjallalandi og var bæði varnarmálaráðherra og menntamálaráðherra landsins á sínum tíma. Bošković var handtekinn á mánudag í Podgorica, höfuðborg Svartfjallalands, grunaður um aðild að glæpasamtökum sem beinast markvisst gegn pólitískum andstæðingum. Þetta kemur fram í frétt miðilsins Vijesti. Samhliða stöðu sinni hjá EHF er Predrag Bošković í aðalstjórn Lýðræðislega sósíalistaflokksins (DPS) í Svartfjallalandi. Boskovic neitar sök í ákærunum og var látinn laus eftir handtökuna þar sem dómari við hæstaréttinn í Podgorica féllst ekki á kröfu saksóknara um gæsluvarðhald. Boskovic þarf þó að gefa sig reglulega fram við lögreglu svo vitað sé hvar hann er niðurkominn. Þann 21. desember fer fram forsetakjör hjá Alþjóðahandknattleikssambandinu (IHF) í tengslum við þing sambandsins í Kaíró. Boskovic er einnig stjórnarmaður í Alþjóðahandknattleikssambandinu.
Handbolti Svartfjallaland Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Körfubolti Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Enski boltinn Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Íslenski boltinn Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Körfubolti Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Fleiri fréttir Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Sjá meira