Antony sakar United um virðingarleysi og dónaskap Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. október 2025 15:46 Antony upplifði erfiða tíma hjá Manchester United. Getty/Carl Recine Brasilíumaðurinn Antony er laus úr prísundinni hjá Manchester United eftir að félagið samþykkti að selja hann til spænska félagsins Real Betis í haust.
Antony hafði áður verið á láni hjá Betis og blómstraði þar eftir hörmungartíma sinn hjá United. Antony gerði upp tímann hjá Manchester United í viðtali við ESPN í Brasilíu. „Sjáðu til. Ég er ekki þessi náungi sem vill blanda mér í einhverjar deilur eða er að ásaka fólk um eitthvað. Ég mun því ekki nefna neinn á nafn,“ sagði Antony. „Mér fannst samt vera ákveðið virðingarleysi í gangi og jafnvel dónaskapur líka. Það bauð mér enginn góðan daginn eða góða kvöldið,“ sagði Antony. „Ekki einu sinni það. Þetta er samt bara hluti af fortíðinni og ég ætla að gera mikið mál úr þessu. Núna er ég hér hjá Betis. Hér bý ég í dag og það er það mikilvægasta fyrir mig,“ sagði Antony. Þegar hann var spurður af hverju hlutirnir gengu ekki upp hjá United. „Ég er maður sem sætti mig við mína ábyrgð. Hlutirnir sem voru í gangi utan vallar höfðu slæm áhrif á mig. Ég veit hvað ég get og hvaða gæðum ég bý yfir. Ég spilaði ekki á HM að ástæðulausu. Ég er ekki kominn aftur í landsliðið án þess að geta eitthvað,“ sagði Antony. „Ég tek samt mína ábyrgð á því að hlutirnir gengu ekki upp og ég spilaði ekki eins og vel og ég get. Ég reyni alltaf að sjá það jákvæða og kannski var nauðsynlegt fyrir mig að fara í gegnum þennan tíma hjá United til að læra betur á mig sjálfan,“ sagði Antony.
Spænski boltinn Enski boltinn Mest lesið Slóst eftir leik og var rekinn út af: „Viðbrögðin í leikslok voru hræðileg“ Fótbolti Kevin Keegan látinn Enski boltinn Þekkt hnefaleikakona látin aðeins 26 ára gömul Sport Tove nýtti tímann sinn á Íslandi til hins ítrasta Sport Messi felldi tár í leikslok: „Enginn draumaendir“ Fótbolti Þrettán ára drengur lést í fagnaðarlátum á Spáni Fótbolti Leik lokið: FH – Breiðablik 0-0 | Markalaust þrátt fyrir fjölda færa Íslenski boltinn Gætu misst bæði Messi og landsliðsþjálfarann sinn Fótbolti Guardiola hafði rétt fyrir sér um Rodri Fótbolti Íslenska víkingaklappið lifir: FH-strákarnir unnu Gothia Cup Sport Fleiri fréttir Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Sjá meira