Rafíþróttir

Veittist að sau­tján ára mót­herja sínum og hreytti í hann fúk­yrðum

Agnar Már Másson skrifar
„Þetta er einstaklega leiðinlegt atvik. Málið er í ferli hjá RÍSÍ,“ segir framkv;æmdastjóri RÍSÍ. Spilararnir á myndinni tengjast fréttinni ekki með beinum hætti.
„Þetta er einstaklega leiðinlegt atvik. Málið er í ferli hjá RÍSÍ,“ segir framkv;æmdastjóri RÍSÍ. Spilararnir á myndinni tengjast fréttinni ekki með beinum hætti.

Stympingar urðu milli keppenda á rafíþróttamótinu Skjálfta á laugardag. Einn keppandi hrinti sautján ára mótherja sínum eftir að hafa tapað viðureign þeirra. Á spjallrás hreytti hann einnig fúkyrðum í unga drenginn, sem hann kallaði „ógeðslegt innflytjanda hyski“. RÍSÍ harmar atvikið.

Einn stærsti rafíþróttaviðrburður landsins var haldinn um helgina í íþróttahúsi HK í Digranesi í Kópavogi þar sem mótið Skjálfti var haldið í fyrsta sinn í rúm tuttugu ár. 

Ryskingar urðu milli keppenda þegar hinn þrítugi Eyþór Atli Geirdar, eða „waNker“ eins og hann er þekktur á skjánum, gekk að sautján ára mótherja sínum eftir viðureign þeirra og hrinti honum. Atvikið náðist á mynd og hefur klippa af ryskingunum fengið rúmlega tvö þúsund áhorfa á Twitch. Þar má sjá unga drenginn lenda á borði.

„Þetta er einstaklega leiðinlegt atvik. Málið er í ferli hjá RÍSÍ,“ segir Jökull Jóhannsson, framkvæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands, í samtali við Vísi. Hann vildi ekki tjá sig frekar um málið.

Í spjallþræði inni í leiknum áttu liðin tvö í samskiptum þar sem hann lýsti því yfir að hann væri „tilbúinn að berja lítinn krakka“ og kallaði unga drenginn, sem er af erlendum uppruna, „ógeðslegt innflytjanda hyski [svo]“.

„Ég er tilbúinn að verja lítinn krakka,“ skrifar Eyþór. „Ógeðslega innflytjenda hyski,“ bætti hann svo við.

Að þessu atviki undanskildu segir Jökull að mótið hafi gengið afar vel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×