Norræni skálinn á heimssýningunni í Osaka hlaut gullverðlaun Lovísa Arnardóttir skrifar 25. september 2025 21:02 Hlín Helga Guðlaugsdóttir, Kristín Eva Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Gagarín og Magnús Elvar Jónsson, hönnunarstjóri Gagarín ásamt starfsmanni skálans í Osaka. Hönnunarmiðstöð Íslands Norræni skálinn á heimssýningunni EXPO 2025 í Osaka hlaut gullverðlaun í flokknum „Best Exhibit / Display“ á World Expolympics. Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi útfærslur í nýsköpun og upplifunarhönnun á Heimssýningunni en þar eru 193 sýningar.
Í tilkynningu á vef Hönnunarmiðstöðvarinnar segir að íslenska hönnunarstofan Gagarín, ásamt dönsku hönnunarstofunni Kvorning og norsk-íslensku arkitektastofunni Rintala Eggertsson, hafi hannað sýninguna í Norræna skálanum. Sýningin fjalli um lífið á Norðurlöndunum með áherslu á gildi, nútímasamfélög, vitundarvakningu og eilífðarsamband okkar við náttúruna. Miðpunktur sýningarinnar sé listaverk úr 700 pappírsörkum og ljósi sem svífi í rýminu og stórt lifandi tuttugu mínútna myndverk The Circle of Trust sem fjallar um árstíðirnar fjórar og lífið á Norðurlöndunum. Verðlaunagripurinn sem hópurinn fékk. Hönnunarmiðstöð Íslands Upplifunin dýpki enn með hljóðverki eftir íslensku tónlistarmennina Sindra Má Sigfússon (Sin Fang) og Kjartan Holm. „Þessi verðlaun sýna það og sanna að það er ekki alltaf stærsta og dýrasta upplifunin sem skilur mest eftir sig, vekur áhuga og veitir innblástur. Hönnunarteymið kom með afar snjalla útfærslu í aðalrýminu þar sem við reyndum að skapa rólega upplifun þar sem aðalatriðið er listaverk útbúið úr pappír, andstætt stórum LED skjám og starfrænu áreiti,“ segir Kristín Eva Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Gagarín Dómnefnd Expolympics, samanstefndur af fólki með sérþekkingu í arkitektúr, sýningarhönnun, menningarfrásögn og upplifunarhönnun, sem endurspeglar fjölbreytt skapandi sjónarhorn hvaðanæva að úr heiminum.
Tíska og hönnun Japan Íslendingar erlendis Mest lesið Urður yfirgefur Kastljós Lífið Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Lífið Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Lífið Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Lífið Ben Jones er látinn Bíó og sjónvarp Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Lífið Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Lífið Aubrey Plaza orðin mamma Lífið Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Menning „Svolítið eins og að vera á annarri plánetu“ Ferðalög Fleiri fréttir Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira