Golf

Þora ekki að horfa á strákinn vegna fúkyrðaflaums

Valur Páll Eiríksson skrifar
Fitzpatrick verður án foreldranna á Rydernum.
Fitzpatrick verður án foreldranna á Rydernum. Minas Panagiotakis/Getty Images

Enski kylfingurinn Matt Fitzpatrick, liðsmaður Evrópu í Ryder-bikarnum, segir að foreldrar hans leggi ekki í að sjá hann spila á móti helgarinnar vegna aðkasts bandarísks stuðningsmanns.

Búast má við töluverðum látum frá bandarískum áhorfendum á móti helgarinnar. Evrópuliðið hefur sjaldan unnið Bandaríkin þegar keppt er vestan Atlantshafsins og tapaði 19-9 á Whistling Straits fyrir fjórum árum. Áhorfendur létu þar Evrópubúana fá það óþvegið og eftir mótið kvartaði Írinn Shane Lowry yfir því að meira að segja eiginkona hans hefði orðið fyrir barðinu á ljótum köllum áhorfenda.

Fitzpatrick segir svipaða sögu af foreldrum sínum sem lentu illa í bandarískum stuðningsmanni á mótinu fyrir fjórum árum. Þau Russell og Susan Fitzpatrick fylgdu honum eftir á mótið á Whistling Straits árið 2021.

„Það er saga af ónæði. Þau nutu sín ekkert sérstaklega á Whistling Straits. Það er ekki hægt að neita því að þetta var slæm upplifun fyrir þau, en það er engin ástæða þess að það verði eins núna,“

„Ég mun augljóslega sakna þeirra þessa vikuna, það er klárt. En ég veit að þau eru að gera það sem er best fyrir þau sjálf og það er mikilvægast,“ segir hinn 31 árs gamli Fitzpatrick.

Keppni á Ryder-bikarnum hefst klukkan 11:00 á morgun í beinni útsendingu á Sýn Sport 4.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×