Innherji

Raun­gengi krónunnar lítil­lega yfir­verðlagt að mati AGS og Seðla­bankans

Hörður Ægisson skrifar
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri hefur sagt að raungengið sé vissulega á flesta mælikvarða hátt um þessar mundir, en samt „ekkert svakalega mikið fjarri því sem getur talist jafnvægisraungengi.“
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri hefur sagt að raungengið sé vissulega á flesta mælikvarða hátt um þessar mundir, en samt „ekkert svakalega mikið fjarri því sem getur talist jafnvægisraungengi.“

Þótt raungengi krónunnar sé búið að rísa hratt að undanförnu, sem hefur þrengt nokkuð að samkeppnishæfni margra útflutningsfyrirtækja, þá er það aðeins nokkrum prósentum hærra en nemur nýlegi mati Seðlabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á jafnvægisraungenginu. Með hliðsjón af því er ekki endilega líklegt að mikil leiðrétting verði á genginu á næstunni.


Tengdar fréttir

Erum nánast háð því að líf­eyris­sjóðirnir fari út með um hundrað milljarða á ári

Þegar það fer að róast um hjá ferðaþjónustunni og lífeyrissjóðirnir fara á nýjan leik að bæta í gjaldeyriskaupin mun raungengi krónunnar, sem eru sögulega hátt um þessar mundir, án vafa leiðréttast en spurningin er hins vegar aðeins hversu mikið, að sögn sérfræðings á gjaldeyrismarkaði. Framan af ári hafa lífeyrissjóðirnir keypt minna af gjaldeyri en á tímum faraldursins og mögulega er gjaldeyrisöflun þjóðarbúsins það sterk að við erum háð því að sjóðirnir fari út með hátt í hundrað milljarða á ári eigi koma í veg fyrir „ósjálfbært“ raungengi.

Mikill rekstrar­bati Icelandair „ólík­legur“ miðað við núverandi sterkt gengi krónu

Sögulega hátt raungengi krónunnar og framleiðsluspenna setur reksturinn hjá Icelandair í „klemmu“, að mati hlutabréfagreinenda, en verðmat á flugfélaginu lækkar umtalsvert eftir uppgjör sem var langt undir væntingum. Það vinnur með Icelandair að helsti keppinauturinn er að minnka umsvifin en hins vegar er erfitt að sjá rekstrarbata í kortunum næstu misserin við núverandi gildi krónunnar á móti Bandaríkjadal.

Skatta­hækkanir á út­flutnings­greinar mun líklega grafa undan raun­genginu

Áform stjórnvalda um aukna skattlagningu á helstu útflutningsgreinar landsins, einkum sjávarútveginn, mun ólíklega skila tekjum í samræmi við væntingar enda munu umsvifin og samkeppnishæfni minnka á sama tíma, að sögn hlutabréfagreinanda og hagfræðings, sem furðar sig á lítilli umræðu í þjóðfélaginu um stöðu okkar mikilvægustu atvinnuvega. Þvert á yfirlýstan tilgang þá sé líklegast að skattahækkanir á útflutningsatvinnuvegina muni draga úr kaupmætti og velmegun þegar á öllu er á botninn hvolft.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×