Kvartmilljón fyrir bólusetningu eftir alvarleg veikindi dóttur Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. september 2025 10:32 Sighvatur Björgvinsson var þingmaður Alþýðuflokksins og síðar Samfylkingarinnar. Hann var ráðherra í þremur ríkisstjórnum á ferli sínum, meðal annars heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra frá 1994 til 1995. Vísir Fyrrverandi heilbrigðisráðherra og kona hans greiddu 240 þúsund krónur til að láta bólusetja sig gegn ristli eftir að dóttir þeirra á sextugsaldri veiktist alvarlega af sjúkdómnum hér á landi. Norrænn hópur hefur til skoðunar hvort tilefni sé til að gera bólusetningu við ristli sem hluta af almenna bólusetningarkerfinu.
Gangi spár eftir fjölgar Íslendingum með heilabilunarsjúkdóma um 80% á næstu 35 árum. Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, sagði í fréttum RÚV um helgina að heilbrigðiskerfið réði ekki við verkefnið að óbreyttu. Steinunn sagði frá nýrri rannsókn sem sýni að bólusetning gegn ristli, útbrotum sem geta myndast þegar hlaupabóluveira sem hefur legið í dvala vaknar til lífsins, geti minnkað áhættu á heilabilun um tuttugu prósent. Bólusetning er í boði hér á landi en skammturinn kostar 60 þúsund krónur á mann. Hver einstaklingur þarf tvo skammta. Fyrirkomulagið og kostnaður er svipaður og á hinum Norðurlöndunum. Dóttir veiktist illa af ristli Sighvatur Björgvinsson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, er orðinn 83 ára. Dóttir þeirra hjóna á sextugsaldri kom til landsins fyrir rúmum þremur árum. Hún veiktist í heimsókninni og var greind með ristil sem getur valdið miklum veikindum. „Þannig fór um dóttur okkar. Hún fékk bráðabirgðalyf hér en fór veik heim til Kýpur þar sem læknar tóku við henni. Læknarnir þar sinntu henni vel, gerðu m.a. aðgerðir á andliti sem stöfuðu af virkni veitunnar. Var hún lengi að ná sér,“ segir Sighvatur í aðsendri grein á Vísi. Læknarnir ráðlögðu eiginmanni hennar að fara strax í bólusetningu sem hann fékk ókeypis. Hjónin ráðlögðu Sighvati og Björk konu hans að fara strax í bólusetningu sem þau gerðu. Þau segjast hafa komið að lokuðum dyrum. „Sumar heilsugæslustöðvar könnuðust við slíkar bólusetningar, en buðu þær ekki. Þegar við leituðum upplýsinga um hvort veikindin ristill væru þekkt hérna var svarið: Nei. Vitað væri um fólk, sem hefði veikst illa og líka um fólk, sem hefði dáið. Sjúkdómurinn væri ekki óalgengur. Þegar ég hafði talað við sjúkratryggingar var svarið slíkt hið sama. Veikindin væru þekkt. Þau væru líka þekkt á Íslandi og gætu haft alvarlegar afleiðingar. Sjúkratryggingar bæru hins vegar engan kostnað af bólusetningarlyfinu.“ Sighvatur sagðist hafa fengið þau ráð að biðja lyfjafræðing um að panta lyfið fyrir sig. Hann þyrfti þó að greiða það. Þörf á frekari rannsóknum „Þá ráðleggingu þáði ég og fékk umbeðið bólusetningarefni sent í lyfjaverslun, þar sem ég leysti það út. Við hjónin fengum svo bólusetningu hjá lækni – og heilsast vel. Borguðum fyrir lyfið sem samsvarar 240 þúsund krónur á núgildandi verðlagi samkvæmt upplýsingum heilbrigðisráðherra í kvöldfréttunum á laugardag. Ekkert var greitt fyrir aðstoð læknisins.“ Málið kveikti áhuga Sighvats sem kynnti sér frásagnir eldra fólks sem hefði veikst af sjúkdómnum, fengið kvalafulla sýkingu og sumt dáið. Alma Möller heilbrigðisráðherra sagði í fréttum RÚV á laugardag þörf á frekari rannsóknum áður en bólusetning við ristli yrði hluti af almenna bólusetningarkerfinu. Norrænn hópur væri með málið til skoðunar. „Í almennum heilsufarsupplýsingum um heilsufarsmál í Bandaríkjunum sem má fá með einföldum hætti með því að fletta upp í tölvunni er skýrt og skilmerkilega frá því sagt, að öllum Bandaríkjamönnum 60 ára og eldri sé eindregið ráðlagt að fá bólusetningu gegn ristli eins og við fengum – nákvæmlega eins og sagt er á á Kýpur. Hvort Bandaríkjamenn fá bóluefnið án sérstaks kostnaðar – eins og á Kýpur – eða fyrir 240 þúsund krónur á hjón – eins og á Íslandi – veit ég ekki.“ Tryggingakerfi Bandaríkjanna er mjög misjafnt á milli fólks eftir atvinnu og misjafnt eftir tryggingum þar í landi hvort og þá hve mikið þarf að greiða fyrir bólusetningar við ristli og öðrum sjúkdómum. Gjörbreytt staða á Kýpur Sighvatur staldrar við breytingar á heilbrigðisþjónustu á Kýpur. Árið 2019 var tekið upp nýtt alhliða heilbrigðiskerfi sem tryggir öllum íbúum landsins heilbrigðisþjónustu. Sighvatur segir að áður hafi fólk þurft að greiða nánast fyrir alla þjónustu sem það sótti. „[Það er] komin heilsugæsla eins og ég ólst upp við þar sem sérhver fjölskylda hafði heimilislækni og heimilislæknirinn var umboðsmaður fjölskyldunnar í hinu flókna heilbrigðiskerfi og hélt samhæfða skrá um allt, sem fyrir fjölskyldufólkið hefði verið gert í kerfinu og hver árangurinn hefði orðið. Að slíkt heimilislæknakerfi væri orðið til á Kýpur sem löngu er hætt að vera til á Íslandi – nema sem tylliástæða.“ Nú þurfi að bíða hér á landi í margar vikur eftir samtali við heimilislækni til einfalds verks á borð við að fá vottorð fyrir sjóngetu til að fá endurnýjað ökuskírteini. „Sem hver og einn, sem orðinn er í röð elstu borgara þarf að gera allt niður í einu sinnu á ári. Þegar ég spurði: Hvers vegna breyttist þetta svona á Kýpur? Fékk ég einfalt svar: Við gengum í Evrópusambandið. Þá var þessu breytt!“ Kýpur gekk í Evrópusambandið árið 2004 og varð hluti af evrusvæðinu árið 2008. Við inngöngu í sambandið þurfti Kýpur að aðlaga heilbrigðislöggjöf sína að regluverki ESB með tilliti til sjúklingaréttinda, lyfjaskráningu, heilbrigðisöryggis og fleira.
Heilbrigðismál Kýpur Evrópusambandið Mest lesið Komust af sjálfsdáðum út úr brennandi íbúð í nótt Innlent Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Erlent Vaktin: Átökin breiðast enn út Erlent Spjótin beinast að séra Jakobi og kaþólsku kirkjunni Innlent Skiptast á að gæta barnanna á meðan þau bíða eftir plássi Innlent Fótbrotinn og févana í Afríku Innlent Formaður Viðreisnar í Reykjavík sakaður um fjárdrátt Innlent Grunaður um að kýla konu og sparka svo í hana þegar hún lá eftir Innlent Matvöruverð hafi hækkað meira en laun og forsendur að bresta Innlent Elliði lofar því að flytja ekki aftur til Eyja Innlent Fleiri fréttir Búið að opna veginn um Raknadalshlíð eftir flóðið Skiptast á að gæta barnanna á meðan þau bíða eftir plássi Komust af sjálfsdáðum út úr brennandi íbúð í nótt Grunaður um að kýla konu og sparka svo í hana þegar hún lá eftir Karólína Helga leiðir Viðreisn í Hafnarfirði Spjótin beinast að séra Jakobi og kaþólsku kirkjunni „Ekki Alþingi sem skipar mér hvað ég á að segja“ Matvöruverð hafi hækkað meira en laun og forsendur að bresta Einar Geir oddviti Miðflokks í Hafnarfirði Vegum lokað í kjölfar snjóflóðs í Raknadalshlíð Elliði lofar því að flytja ekki aftur til Eyja Formaður Viðreisnar í Reykjavík sakaður um fjárdrátt Ríkisstjórnin fái kynningu um þjóðaratkvæði á föstudag „Hversu lágt geta þingmenn lagst í störfum sínum?“ „Djöfulsins feita piggið þitt!“: Slapp með hótun sem hræddi ekki Samfylkingin og ríkisstjórnin lækka flugið Rósa vill leggja fjölmiðlanefnd niður Fótbrotinn og févana í Afríku „Við erum ekki að biðja um neitt meira en aðrir fá“ Um 140 íslenskir ríkisborgarar á áhrifasvæðum átakanna Dagur segir Þorstein auk Jóns eiga heiðurinn af EES-samningnum Láta alla nemendur sem mega þreyta samræmdu prófin Hádegisfréttir Bylgjunnar: Aðalspurningin hvort fleiri blandist inn í átökin „Ég hefði stigið inn í á sekúndum hefði ég vitað af þessu“ Þau skipa lista Sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi Opinber útför Davíðs Oddssonar en fjölskyldan ræður för Kynnir þrettán aðgerðir gegn brotastarfsemi Kæru vegna gistihýsa við þjóðgarðinn í Skaftafelli vísað frá Endurspegli aukna hörku í garð launafólks hjá Hafnarfjarðarbæ Samfylkingin mætt til leiks á Ísafirði Sjá meira