Upp­gjörið: ÍA - Breiða­blik 3-0

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Árni Marinó var öflugur í kvöld.
Árni Marinó var öflugur í kvöld. Vísir/Diego

ÍA, botnlið Bestu deildar karla í fótbolta, gerði sér lítið fyrir og lagði Íslandsmeistara Breiðabliks 3-0 í kvöld. Um er að ræða annan sigur Skagamanna á Blikum í sumar en fyrri leik liðanna í Kópavogi lauk með 4-1 sigri gulra.

Blikar eru nú án sigurs í sex leikjum í röð. Það er ljóst að Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks, þarf að finna lausnir ætli liðið að tryggja sér Evrópusæti.

Leikurinn fór vel af stað enda ljóst að bæði lið þurftu á öllum stigunum að halda. Fyrri hálfleikur var spilaður af jafnræði en Skagamenn voru eina liðið sem náði að nýta færin sín.

Ómar Björn Stefánsson skoraði fyrsta mark leiksins og tvöfaldaði Gísli Laxdal Unnarsson forystuna fyrir ÍA á 37. mínútu leiksins. 2-0 og þannig stóðu leikar í hálfleik.

Bæði lið héldu áfram að sækja en sóknarleikur Blika var ekki upp á marga fiska. Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks, setti inn þrjá sóknarmenn á 60. mínútu en sú skipting breytti litlu í sóknarleiknum.

ÍA voru þéttir til baka og áttu Blikar erfitt með að finna svæði og komast í góð færi.

Steinar Þorsteinsson bætti svo gráu ofan á svart fyrir Breiðablik þegar hann skoraði þriðja mark ÍA á lokamínútu í uppbótatíma.

Mikilvægur sigur fyrir heimamenn þó þeir liggi enn á botni deildarinnar.

Stjörnur og skúrkar

Árni Marinó Einarsson, markvörður ÍA, átti virkilega góðan leik hér í kvöld. Öruggur í sínum aðgerðum.

Stemmning og umgjörð

Það er alltaf góð stemning á Skaganum. Vel mætt í stúkuna og sungið og trallað.

Dómarar

Sigurður Hjörtur Þrastarson var á flautunni. Patrik Freyr Guðmundsson og Eðvarð Eðvarðsson hlupu upp og niður hliðarlínuna. Eftirlitsmaður var Ingvar Örn Gíslason og varadómari Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira