Stefna um mikla og hraða fólksfjölgun „alið á stéttaskiptingu á Íslandi“ Margrét Helga Erlingsdóttir og Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifa 4. september 2025 21:47 Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, segir að mikið kapp verði lagt í að atvinnulífið á landsbyggðinni. Vísir/Bjarni Ríkisstjórnin ætlar að ráðast í stórfellda einföldun regluverks, liðka fyrir leyfisveitingu í orkumálum og beita sér fyrir svæðisbundnum hagvexti úti á landi. Á fundi um atvinnustefnu til næstu tíu ára var tilkynnt um nýstofnað atvinnustefnuráð þar sem fulltrúar hagsmunahópa eru víðs fjarri.
Sveinbjörn Finnsson, aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar, benti í upphafi fundar á að hagvöxtur hefði verið knúinn áfram af fólksfjölgun, einkum aðfluttum einstaklingum sem hafi haft í för með sér verulegt álag á opinbera þjónustu, hvort sem litið væri til húsnæðismarkaðar, samgönguinnviða, menntakerfis eða heilbrigðiskerfis. Einungis eitt prósent þeirra starfa sem hefðu orðið til á síðustu fimmtán árum væru innan atvinnugreina með háa framleiðni. Fimm manna atvinnustefnuráð var sett á laggirnar en enginn úr hópi hagsmunasamtaka tilheyrir því. Liður í nýrri atvinnustefnu er að einfalda leyfisveitingaferli í orkumálum, einfalda byggingarreglugerð, að stuðningur við rannsóknir og þróun nemi þremur og hálfu prósenti af vergri landsframleiðslu og að skapa vel launuð störf á landsbyggðinni. Fólksfjölgun haft áhrif Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, segir að mikið kapp verði lagt í að atvinnulífið á landsbyggðinni. „Tími stórframkvæmda er runninn upp að nýju. Við ætlum að beita okkur fyrir stórum verkefnum meðal annars til að koma kjölfestu fjárfestingum út fyrir höfuðborgarsvæðið. Það verður auðvitað alltaf áhersla hérna þar sem öll störfin eru; hér í Reykjavík og nær samfélögum en við þurfum að beita okkur sérstaklega til að fá svæðisbundinn hagvöxt út á landi.“ Fulltrúa ferðaþjónustu þótti leitt að sjá að ekkert táknaði ferðaþjónustu á mynd um atvinnustefnu. Kristrún segir að ferðaþjónusta verði áfram mikilvæg stoð. „Margar atvinnugreinar geta lifað góðu lífi þótt þær séu ekki broddur hagvaxtar eða það sem keyrir upp hafvöxtinn næstu tíu ár.“ Ríkisstjórnin muni verða ferðaþjónustunni innan handar en ræða þurfi um hina miklu fólksfjölgun. „Hún hefur haft áhrif á menntakerfið, hún hefur haft áhrif á tækifæri fyrir börn sem hingað koma til að mynda með erlendum foreldrum, hún hefur að mínu mati alið á stéttaskiptingu á Íslandi. Við viljum að fólk sem komi til íslands geti starfað í fjölbreyttum störfum en ekki láglaunastörfum fyrst og fremst og við verðum að taka þá umræðu.“ Tal um lága framleiðni „ekki rétt“ Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar hafnar því að ferðaþjónustunnar upplifi sig út undan og segir hana í góðu samtali við stjórnvöld. „Það er hins vegar áhugavert að heyra þetta með stéttaskiptinguna af því að nú er það þannig samkvæmt opinberum gögnum að ferðaþjónustan er víð atvinnugrein, margar greinar,“ segir Jóhannes. Meiri hluti þeirra sem starfa í greininni séu með laun í kringum meðallaun. Þá sé meðalframleiðni samanborið við aðrar atvinnugreinar á landinu. „Þannig að allt tal um að þetta sé láglaunagrein með lága framleiðni eða mikið lægri en hagkerfið í heild er ekki rétt.“ Jóhannes segir mikilvægt að atvinnulífið virki sem heild og atvinnugreinarnar styðji hvora aðra. Hann lýsir áhyggjum innan ferðaþjónustunnar af tali stjórnvalda um að framvegis verði horft til þess að setja ferðaþjónustunni hömlur eða takmarkanir til að ýta undir aðrar atvinnugreinar. „Við teljum að það sé skynsamlegt að allar atvinnugreinar búi við góð starfsskilyrði og rekstrarskilyrði þannig að þær geti vaxið þar sem mögulegt er og framleiðnin aukist. Til þess eru mörg tækifæri í ferðaþjónustu eins og öðrum atvinnugreinum.“ Hvetur ráðuneytið til að tala út frá staðreyndum Jóhannes bendir á að ferðaþjónustan hafi ýtt undir vöxt annarra atvinnugreina, til dæmis með útflutningi á verðmætum fiskafurðum. Þá sé gott fyrir innfluttu vinnuafli í hugverkaiðnaði að það séu góðar flugtengingar til landsins. „Við verðum að horfa á þetta sem Kristrún segir og hefur verið sagt varðandi innflutning á erlendu vinnuafli, að fjölgun erlends vinnuafls í ferðaþjónustunni síðustu ár er ekki nema tíu prósent af heildaríbúafjölgun landsins á þessum tíma. Þannig að það er víðs fjarri að ferðaþjónustan standi undir einhvers konar meiri hluta af fólksfjölgun.“ Það hafi um fimm þúsund manns bæst við ferðaþjónustu á síðustu sjö árum af erlendu vinnuafli. Á sama tíma hafi bæst við um sex þúsund manns í iðnaði og um 4500 í opinbera geiranum. „Það er aldrei talað um opinbera geirann og iðnaðinn í þessu samhengi heldur bara ferðaþjónustuna. Þannig að ég hvet bara forsætisráðuneytið til að skoða þessar tölur og tala um ferðaþjónustuna út frá staðreyndum og gögnum.“
Ferðaþjónusta Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Vinnumarkaður Mest lesið Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Innlent Fleiri fréttir Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Sjá meira