Þegar Jónas var jarðsettur hundrað árum eftir andlátið Jón Þór Stefánsson skrifar 20. ágúst 2025 20:01 Jónas frá Hriflu og Ólafur Thors, þáverandi forsætisráðherra, voru fremstu kistuberar Jónasar Hallgrímssonar. Myndefni eftir Vigfús Sigurgeirsson sem sýnir meðal annars frá útför Jónasar Hallgrímssonar hefur verið birt á vef Kvikmyndasafnsins.
Umrædd útför Jónasar fór fram löngu eftir andlát hans. Hann lést þann 26. maí 1845, fimm dögum eftir að hann féll í stigagangi á heimili sínu í Kaupmannahöfn. Upphaflega var hann jarðsettur í Assisstenskirkjugarðinum í Kaupmannahöfn. Leifar hans voru þó fluttar þaðan og til Íslands rúmum hundrað árum síðar, árið 1946. Útför hans fór síðan fram þann16. nóvember þetta sama ár. Hann var lagður til hinstu hvílu í Þjóðargrafreitnum við Þingvallakirkju, við hlið Einars Benediktssonar. Mörg íslensk fyrirmenni voru í þessari jarðarför. „Ólafur Thors, forsætisráðherra, og Jónas Jónsson frá Hriflu þingmaður Framsóknarflokksins, fremstu líkmenn en auk þeirra: Jón Pálmason, forseti sameinaðs Alþingis, Þorsteinn Þorsteinsson, forseti efri deildar Alþingis, Barði Guðmundsson, forseti neðri deildar Alþingis, Jörundur Brynjólfsson, þingmaður Framsóknarflokksins, Sigurður Kristjánsson, formaður þingvallanefndar og Bernharð Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Þá taka við kistunni rithöfundar og náttúrufræðingar: Guðmundur Hagalín, Guðmundur Daníelsson, Jakob Thorarensen, Friðrik Brekkan, Árni Friðriksson, Sigurður Pjetursson, Ingólfur Davíðsson og Þór Guðjónsson. Eftir þeim ganga biskup Íslands séra Sigurgeir Sigurðsson, séra Hálfdán Helgason og séra Bjarni Jónsson, vígslubiskup,“ segir á vef Kvikmyndasafnsins. Fyrstu forsetar lýðveldisins myndaðir Fleira merkilegt myndefni eftir Vigfús Sigurgeirsson hefur nú verið birt á vefnum Ísland á filmu. Samkvæmt tilkynningu er um að ræða mikið af áður óséðu efni. Vigfús var einn af helstu frumkvöðlum íslenskrar kvikmyndagerðar. Gunnar Tómas Kristófersson, kvikmyndafræðingur, skrifaði grein um Vigfús í tímaritið Sögu í fyrra. Þar fjallaði hann um hvernig Vigfús mótaði sýn Íslendinga á nýstofnað lýðveldið með myndum af forsetanum sem þjóðartákni, oft í samhengi við fánann, landslag, þjóðlegan búning og almenning. Þarna má sjá myndefni frá fyrstu forsetum Íslands. Sýnt er frá opinberum heimsóknum fyrstu tveggja forseta Íslands, Sveins Björnssonar og Ásgeirs Ásgeirssonar, víða um land. Meðal annars má sjá Ásgeir við veiðar af varðskipinu Þór og þegar ferð Sveins tafðist vegna sauðfjárreksturs. Þá má líka sjá myndefni frá jarðsetningu Sveins Hann er eini íslenski forsetinn sem látist hefur í embætti. Hann lést 25. janúar 1952 og fór jarðarförin fram rúmri viku síðar, þann 2. febrúar. Séra Bjarni Jónsson, dómkirkjuprestur, jarðsöng hann.
Einu sinni var... Bíó og sjónvarp Þingvellir Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Taskmaster Ísland snýr aftur Lífið Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Ekkert offors hjá Fors Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Fleiri fréttir Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Sjá meira