Isak rýfur þögnina og segir Newcastle hafa svikið loforð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. ágúst 2025 20:26 Alexander Isak staðfesti það endanlega í kvöld að hann vilji fara frá Newcastle. EPA/ADAM VAUGHAN Alexander Isak, sænski framherjinn hjá Newcastle, hefur í fyrsta sinn tjáð sig opinberlega um stöðuna sem er komin upp á milli hans og félagsins. Það er erfitt að sjá hann spila aftur fyrir félagið.
Isak æfði ekki með Newcastle á undirbúningstímabilinu og var ekki með í markalausu jafntefli við Aston Villa í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Isak vill komast til Liverpool en Newcastle hafnaði 110 miljón punda tilboði Englandsmeistaranna í sænska framherjann. Hann er sagður vera í verkfalli. Isak rauf þögnina með því að setja inn pistil á Instagram siðu sína. „Ég hef þagað í langan tíma á meðan aðrir hafa tjáð sig. Sú þögn mín hefur gefið öðru fólki færi á að setja fram eigin kenningar um stöðu mála þó að þær segi ekkert skylt við það sem var sagt og samþykkt á bak við tjöldin,“ skrifaði Alexander Isak. „Staðreyndin er sú að loforð voru gefin og félagið hefur vitað um mína afstöðu í langan tíma. Að halda því ranglega fram að þetta sé allt í einu núna að koma upp á yfirborðið eru bara blekkingar,“ skrifaði Isak. „Þegar loforð eru svikin og traust heyrir sögunni til þá er ekki hægt að halda sambandinu áfram. Þannig er staðan hjá mér núna og því er best fyrir alla að gera breytingar, ekki bara fyrir mig,“ skrifaði Isak. Hinn 25 ára gamli Isak hefur skorað 62 mörk í 109 leikjum fyrir Newcastle og var frábær á síðustu leiktíð þegar Newcastle vann sinn fyrsta titil í mjög langan tíma. @alex_isak
Enski boltinn Mest lesið Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „stúkan er of þögul“ Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Fleiri fréttir Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Sjá meira