Réttur barna versus veruleiki Matthildur Björnsdóttir skrifar 18. ágúst 2025 19:01 Trúarlegur sem lagaréttur barna eru mjög mikilvæg og fín atriði á blaði. En skrif Einars Huga Bjarnasonar eru í dúr við fullkomnun sem er því miður ekki alltaf til staðar. Veruleikinn er því miður ekki alltaf í dúr við flottu goðsagnar ástarsögurnar um foreldrun. Og kynhvötin er ekki alltaf í þeim með samasem merki um þrá eftir að verða pabbar. Svo voru viðhorfin þau mjög lengi að það ætti að herða drengi sem er ekki endilega það sem sé séð sem hollt eða rétt í dag. Svo að gæti slíkt viðhorf í föður sem ólst upp í því, verið ástæða tálmunar eða önnur neikvæð hegðunar-atriði og viðhorf? Heimilisofbeldi var aldrei í fréttum á mínum tímum á landinu. En er sorglega oft í fréttum í dag. Og það myndi auðvitað oft enda með að þolandi sjái um tálmun. Ég elska að sjá unga feður hér í verslunarmiðstöðinni í Adelaide í Ástralíu sem eru greinilega svo yndislegir pabbar. Hvað er svo enn í gangi í viðhorfum um uppeldi frá viðhorfum fyrri tíma? Menn með kerrur, barnavagna og eða poka á maga eða baki með barni í sáust hinsvegar ekki neinsstaðar þegar ég var ung á Íslandi. Né hjá minni kynslóð. Þegar ég skildi við manninn minn árið 1977 eftir hjónaband sem hafði ekki farið eftir réttum ástarsögu leiðum. Þá sagði ég honum þó, að hann ætti að vera í lífi barnanna. Taka þau út og sinna þeim. Því miður sótti hann þau bara í örfá skipti, og var svo farinn á ný mið, sem virkuðu svo ekkert betur. Nágrenni mitt í æsku var oft föðurlaust, þar sem sumir feður voru á sjónum. Og aðrir feður með sérgrein fóru til annars lands til að bæta við þekkingu sína í því fagi. Svo að þá voru börnin án þeirra í langan tíma. Orðið og hugtakið tálmun var ekki í málinu þá. Eiginkonurnar, mæðurnar voru í raun einstæðar mæður, þó að þær væru tengdar við föður í skjölum. Feður sem ég sá aldrei í alvöru föðurhlutverki heima eða í nágrenni. Og ef menn sáust ýta kerru eða vagni var oft gert grín að þeim. Hvernig feður væru þeir synir? Ég veit það ekki. Af því að ég vitnaði þá drengi í nágrenninu ekki í þeim hlutverkum. Lögin geta ekki gert menn sem eru ekki hæfir eða viljugir til að vera samþykkjanlegir feður að slíkum. Lífið er því miður ekki nærri alltaf þannig. Jafnvel góð kennsla myndi ekki virka í öllum karlmönnum sem væru með allt önnur atriði í heilanum en foreldrun. Ef skapgerðin er ekki vel fallin til kærleika og umburðarlyndis, af því að slíks var ekki notið heima hjá þeim. Hverjar eru ástæður tálmunar? Myndu yfirvöld fara í ástæður þess að það foreldri, telji fyrrverandi maka ekki örugggan fyrir andlega, tilfinningalega og líkamlega líðan barnsins. Hvort sem það væri konan eða maðurinn, eða nú á tímum breytts veruleika um kyn, þess foreldris sem væri að ræða sem upplifði tálmun. Það hafa því miður, en líka sem betur fer, verið greinar eftir ungu kynslóðina sem sýna að af einhverjum ástæðum hafi sumir feður ekki sýnt rétt viðmót og hegðun við börn sín. Það er mikil framför að sjá, að nú má tjá sig um slíkt á okkar tímum á nýrri öld. Það var bara skortur á þroska í þeim manni sem ég skildi við, en engin slæmska af því tagi sem myndi hafa látið mig banna honum samband við börnin. Hann sá um vanræksluna sjálfur. Það var hinsvegar engin eftirfylgni frá yfirvöldum þá á sjöunda áratug síðustu aldar til að einu sinni reyna að sýna honum eða öðrum feðrum mikilvægi þess að hann eða aðrir menn sem hundsuðu börn sín, án þess að hafa beitt þau ofbeldi, sinntu börnum sínum. Engin gagnleg tilfinningaleg leiðbeining var til staðar. Eins og hlutir voru þá í samfélaginu, hafði ég ekki einu sinni hugsun um að það væri gæti verið mál yfirvalda að sjá um slíkt. Svo er það hin hlið barna að lifa föðurleysi Feður og eða þeir, sem ég kalla bara sæðisskaffara. Sem er af því að þeir hurfu og vissu ekki einu sinni né vildu vita um getnað frá sér. Og ég séð og heyrt um ótal tilfelli af því. Eitt af þeim tilfellum varð hluti af dæmi mannsins sem ég skildi við. Yfirvöld höfðu sjálfvirkt grænt ljós fyrir þá til að gera það sem þeim hentaði. Og það frekar, en að setja sig í hollt foreldralegt hugarástand. Á árunum 1957-1959 vitnaði ég föður á öðru heimili en því sem ég kom frá lúberja syni sína í hádeginu. Og hinir fjölskyldumeðlimirnir þögðu á þeim tímum kröfu um þöggun yfir slíku, og hann var ekki kærður. Við stelpur og konurnar tvær sem voru á heimilinu vitnuðum ofbeldið vitandi að við yrðum að þegja. Mættum ekki einu sinni reyna að stoppa ofbeldið. Við kvenkyn sátum þá þar eða stóðum og höfðum þá samhygðarminningu sitjandi í okkur. Ég hafði verið send þangað af því að það var þá enginn skóli í því hverfi sem við áttum heima í. En það heimili var nálægt þeim skóla sem ég endaði í. Þau þegjandi viðhorf sem urðu að einskonar samfélagslögum. Sem þá var vegna kröfu samfélagsins á þeim tímum. Og gefins rétts foreldra til að lúskra þannig á börnum sínum. Ofbeldi sem viðkomandi faðir hafði hugsanlega lifað við frá eigin föður. Hvort synirnir hafi upplifað að eiga góða föður fyrirmynd frá honum væri stór spurning? Hversu mikið af slíku ferli hefur lekið niður taugakerfin ótal kynslóðir með kúguðu samþykki eiginkonu eins og Thomas Hubl segir um slíkt. Sem er að erfiðar tilfinningar færist niður í taugakerfin og sitji þar og fari niður kynslóðirnar væri fróðlegt að mæla ef mögulegt væri. Tjáning er leið til að létta af slíkri mengun þarna inni, en þöggun byggir upp kássu sem hefur enga sögu. Þöggunarkrafa samfélagsins gegn tjáningu um erfiða reynslu hélt áfram að minni langtíma upplifun. Þöggunar lög andrúmslofts landsins í ómældan tíma svo að enginn þyrfti að hugsa um eigin gerðir. Og engin meðvitund heldur heyrð um að mannverur eru ekki allar á sama þroskastigi á sama aldri. Höfundur hefur verið búsettur lengi í Ástralíu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Matthildur Björnsdóttir Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar