Stuðningsmenn Chelsea bjartsýnastir en mjög svartsýnir hjá Newcastle Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. ágúst 2025 10:32 Það er mikil bjartsýni í herbúðum Chelsea og meðal stuðningsmanna félagsins eftir frábært sumar. EPA/JUSTIN LANE Enska úrvalsdeildin í fótbolta hefst á föstudagskvöldið og það er mikil spenna hjá knattspyrnuáhugafólki eftir mikla sviptingar á leikmannamarkaðnum í sumar.
The Athletic gerði skemmtilega könnun meðal stuðningsmanna félaganna tuttugu í ensku úrvalsdeildinni fyrir tímabilið. Kannað var hvort stuðningsfólkið væri bjartsýnt eða svartsýnt fyrir komandi leiktíð. Chelsea varð heimsmeistari félagsliða í sumar og á Brúnni er bjartsýnin í hæstu hæðum meðal stuðningsmanna. Alls voru 98 prósent stuðningsmanna Chelsea bjartsýnir fyrir tímabilið eða einu prósenti meira en stuðningsmenn Englandsmeistara Liverpool en 97 prósent þeirra eru bjartsýnir. Það er yfir níutíu prósent stuðningsmanna bjartsýnir hjá bæði Brighton og Sunderland. Manchester liðin eru síðan með 86 prósent (United) og 85 prósent (City) bjartsýni meðal stuðningsmanna. Arsenal hefur styrkt sig mikið í sumar en það skilar þó bara 84 prósent bjartsýni meðal stuðningsmanna sem hafa þurft að sætta sig við annað sætið á þremur tímabilum í röð. Þetta hefur aftur á móti verið afar erfitt sumar fyrir stuðningsmenn Newcastle þrátt fyrir fyrsta bikarinn í meira en fimmtíu ár. Aðeins nítján prósent stuðningsmanna Newcastle eru bjartsýnir á tímabilið sem þýðir jafnframt að 81 prósent þeirra eru svartsýnir. Úlfarnir eru næstir fyrir ofan en þó eru munu fleiri bjartsýnir eða 32 prósent. Þar fyrir ofan eru West Ham (39 prósent) og Fulham (44 prósent). Hjá alls fimm félögum er meira en helmingur stuðningsmanna svartsýnir því fleiri stuðningsmenn Bournemouth eru líka svartsýnir en bjartsýnir enda er liðið búið að selja margar stjörnur í í sumar. View this post on Instagram A post shared by The Athletic | Football (@theathleticfc)
Enski boltinn Mest lesið Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „stúkan er of þögul“ Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti HM-minning: Þegar Norður-Kórea komst lengra en Brasilía á HM Fótbolti Fleiri fréttir Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Sjá meira