Sævar Atli hetja Brann sem er í góðum málum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 7. ágúst 2025 18:53 Sævar Atli og Eggert Aron voru báðir í byrjunarliði Brann. Brann Sævar Atli Magnússon hefur byrjað af krafti hjá sínu nýja liði Brann. Hann skoraði bæði mörkin í frábærum 2-0 útisigri á Häcken í 3. umferð forkeppni Evrópudeildar karla í fótbolta.
Það byrjaði reyndar ekki vel hjá Brann í kvöld þegar heimamenn skoruðu eftir aðeins tvær mínútur en markið sem betur fer dæmt af. Skömmu síðar fékk Sævar Atli gult spjald og þurfti því að passa sig það sem eftir lifði leiks. Eftir rétt rúman stundarfjórðung fengu gestirnir frá Bergen vítaspyrnu. Joachim Soltvedt fór á punktinn en brenndi af. Sem betur fyrir Soltvedt, og Brann, var Sævar Atli á skotskónum þegar rétt tæpur hálftími var liðinn, staðan 0-1 í hálfleik. Sævar Atli fagnar öðru marka sinna í kvöld.Brann Á 57. mínútu bætti Sævar Atli við öðru marki sínu og öðru marki gestanna eftir undirbúning Ulrik Mathisen. Staðan orðin 0-2 og reyndust það lokatölur. Lærisveinar Freys Alexanderssonar eru því í frábærum málum fyrir síðari leik liðanna sem fram fer í næstu viku. Sævar Atli spilaði allan leikinn og Eggert Aron var tekinn af velli þegar ein mínúta var til loka venjulegs leiktíma. Elías Rafn Ólafsson stóð vaktina í marki Midtjylland sem fór frá Jótlandi á Danmörku til Noregs og mætti Fredrikstad í sömu keppni. Lokatölur 3-1 gestunum í vil. Markvörðurinn átti fínan leik í marki Midtjylland og mögulega gefur frammistaðan honum leið inn í liðið á ný eftir að hafa setið á bekknum það sem af er tímabili.
Fótbolti Evrópudeild UEFA Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Sjá meira