Viðskipti innlent

Arion og Kvika í samrunaviðræður

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion, og Ármann Þorvaldsson, bankastjóri Kviku.
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion, og Ármann Þorvaldsson, bankastjóri Kviku. Vísir

Stjórn Kviku banka hefur samþykkt að verða við beiðni stjórnar Arion banka um að hefja formlegar samrunaviðræður milli bankanna, og hefur viljayfirlýsing þess efnis verið undirrituð af hálfu beggja aðila.

Frá þessu greindi Kvika í kauphallartilkynningu um hálftíuleytið í kvöld.

„Í viðræðum um sameiningu félaganna er lagt til grundvallar að viðskiptagengið verði 19,17 krónur á hvern hlut í Kviku banka og 174,5 krónur á hlut fyrir Arion banka í væntum samruna.“

„Þannig munu hluthafar Kviku eignast 485.237.822 nýja hluti í sameinuðu félagi sem jafngildir 26% hlut. Gert er ráð fyrir sanngjarnri leiðréttingu skiptihlutfalla komi til úthlutunar af fjármunum félaganna til hluthafa fram til þess dags er samruninn tæki gildi.“

„Búist er við að viðræðurnar muni fara fram á næstu vikum og verður nánar upplýst um framvindu þegar ástæða er til og í samræmi við lögbundna upplýsingaskyldu bankans,“ segir í tilkynningu.

Arion banki og Íslandsbanki óskuðu báðir eftir samrunaviðræðum við Kviku banka í maí, og fór það svo að Kvika hafnaði báðum tilboðunum og sagði hvorugt nógu gott.

Arion og Íslandsbanki ítrekuðu svo báðir ósk sína um að sameinast bankanum í gær, og virðist Arion hafa boðið betur.

Arion hefur einnig sent tilkynningu til Kauphallar þar sem sagt er frá samrunaviðræðunum.

„Tækifærin sem felast í samruna félaganna eru fjölmörg, bæði fyrir viðskiptavini og hluthafa. Gangi ferlið eftir verður til öflugur banki sem er einstaklega vel í stakk búinn að mæta fjölbreyttum fjármálaþörfum einstaklinga, fyrirtækja og fjárfesta,“ segir í tilkynningu Arion banka.

Í tilkynningu frá Íslandsbanka segir að stjórn Kviku hafi hafnað beiðni Íslandsbanka um samrunaviðræður.

„Íslandsbanki hefur áður gefið út að bankinn hafi til skoðunar tækifæri til bæði innri og ytri vaxtar og mun bankinn áfram skoða hagkvæmustu leiðir til að nýta umfram eigið fé.“

„Það er mat stjórnar Íslandsbanka að það felist ýmis tækifæri til frekari samþættingar á fjármálamarkaði innanlands en einnig séu tækifæri til vaxtar erlendis. Bankinn mun áfram horfa til virðisaukningar fyrir bæði viðskiptavini og hluthafa bankans,“ segir í tilkynningu Íslandsbanka.

Fréttin hefur verið uppfærð


Tengdar fréttir

Kvika segir hvorugt tilboð nægilega gott

Kvika banki hefur afþakkað boð bæði Arion banka og Íslandsbanka upp í samrunadans. Stjórn bankans telur tilboðin hvorugt endurspegla virði Kviku.

Annar banki býður betra verð en hinn með sömu eigendur

Stjórn Íslandsbanka annars vegar og stjórn Arion banka hins vegar hafa báðar óskað eftir að hafnar verði samrunaviðræður við Kviku banka. Ritstjóri Innherja segir tilkynningarnar ekki koma á óvart en bæði séu kostir og gallar við báða samruna. Ekki er vitað hvort stjórn Kviku vilji eiga í samrunaviðræðum.

Kvika vinsælasta stelpan á ballinu

Stjórn Íslandsbanka hefur óskað eftir því við stjórn Kviku banka að hafnar verði samrunaviðræður milli félaganna tveggja. Stjórn Arion banka óskaði eftir því í gær við stjórn Kviku að hafnar yrðu samrunaviðræður milli Arion og Kviku. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×