Njarðvíkingar flugu á toppinn með stórsigri í Grindavík Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júlí 2025 21:25 Það er gaman hjá Njarðvíkingum þessa dagana í fótboltanum. @njardvikfc Njarðvíkingar eru á toppnum í Lengjudeild karla í fótbolta eftir stórsigur á Grindavík í kvöld. Þetta var gott kvöld fyrir Reykjanesbæ því Keflvíkingar unnu líka sinn leik og þar var langþráður sigur á ferðinni.
Njarðvík vann Grindavík 5-1 eftir að hafa komist í 4-0 í fyrri hálfleiknum. Njarðvík er með 23 stig eða einu stigi meira en ÍR-ingar sem eiga leik inni. Njarðvíkingar hafa ekki enn tapað í deildinni, eru með sex sigra og fimm jafntefli í ellefu leikjum. Fjórir Njarðvíkingar skoruðu í fyrri hálfleiknum. Oumar Diouck skoraði á 8. mínútu, Dominik Radic skoraði á tólftu mínútu, Valdimar Jóhannsson skoraði á tuttugustu mínútu og loks skoraði Amin Cosic á 22. mínútu. Radic skoraði sitt annað mark á 60. mínútu og kom Njarðvíkurliðinu þar með í 5-0. Adam Árni Róbertsson minnkaði muninn í 5-1 á 63. mínútu og að reyndust vera lokatölurnar. Reynsluboltinn Frans Elvarsson kom inn á sem varamaður og tryggði Keflavík 3-2 sigur á Selfossi. Frans skoraði sigurmarkið á 80. mínútu eftir að hafa komið inn á sem varamaður aðeins fjórum mínútum áður. Þetta var langþráður sigur hjá Keflavíkurliðinu sem var búið að spila fimm deildarleiki í röð án sigurs og fagnaði sínum fyrsta sigri frá 23. maí. Keflvíkingar komust tvisvar yfir á fyrstu fimmtán mínútunum en Selfyssingar jöfnuðu í bæði skiptin. Ari Steinn Guðmundsson kom Keflavík í 1-0 á annarri mínútu en Reynir Freyr Sveinsson jafnaði fimm mínútum síðar. Muhamed Alghoul kom Keflavík aftur yfir á 15. mínútu en Alexander Clive Vokes jafnaði metin þremur mínútum síðar.
Lengjudeild karla UMF Njarðvík Keflavík ÍF UMF Selfoss UMF Grindavík Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Fleiri fréttir Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristinn og Kristinn Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“