Innlent

Tekjur af lax­veiði í Borgar­firði eru vel yfir 50% af tekjum land­búnaðar á svæðinu

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
  Anna Heiða Baldursdóttir, sérfræðingur í rannsóknum á Landbúnaðarsafni Íslands og sýningarstjóri sýningarinnar á Hvanneyri.
Anna Heiða Baldursdóttir, sérfræðingur í rannsóknum á Landbúnaðarsafni Íslands og sýningarstjóri sýningarinnar á Hvanneyri. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Sögu laxveiða í Borgarfirði eru gerð góð skil á nýrri sýningu á Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri. Sýningarstjórinn segir að Borgarfjörður sé vagga laxveiða á Íslandi en tekjur af laxveiði eru til dæmis rúmlega 50% af tekjum landbúnaðar á svæðinu.

Sýningin er í kjallara landbúnaðarsafnsins í góðu rými þar sem má meðal annars lesa fræðilegan texta á skiltum, sjá gamlar lifandi myndir úr laxveiði og fleira og fleira, allt mjög áhugavert. Anna Heiða er sýningarstjóri sýningarinnar.

„Við erum með netaveiði í Hvítá á sýningunni og við erum með náttúrufræði og líffræði laxins. Við erum líka með sögu og menningu veiðanna og veiðifélög og veiðihús og svo veiðisögur líka,” segir Anna Heiða og bætir við.

„Ég held að mér sé óhætt að segja að Borgarfjörðurinn sé vagga laxveiðanna því það eru allar betri veiðiár landsins hér í héraði eins og Langáin, Grímsá, Norðurá og Þveráin”.

Anna Heiða segir mikla og langa hefð fyrir stangaveiði í Borgarfirði.

„Já, það er frá lok 19. aldar, sem byrjað var hér að veiða á stöng en Andrés Andrésson Fjeldsted byrjaði á því og fékk erlenda veiðimenn til að koma því hann kunni ensku og þeir byrja að leigja árnar hérna af honum,” segir Anna.

Eitt af upplýsingaskiltum sýningarinnar þar sem fjallað er um Veiðihús.Magnús Hlynur Hreiðarsson

En laxveiði í dag, eru þetta ekki bara einhverjir ríkir karlar og konur, sem koma að veiða eða hvað?

„Jú, jú, fótboltamennirnir líka. Auðvitað geta allir veidd held ég og ef þeir geta ekki veidd þá er náttúrulega bara upplifunin að vera við árbakkann, njóta náttúrunnar og fuglasöngsins.”

Anna Heiða við einn af laxinum á sýningunni.Magnús Hlynur Hreiðarsson

En hvað með Önnu sjálfa, er hún eitthvað í laxveiði í Borgarfirði?

„Nei, ég hef einu sinni húkkað í hann en það var annar, sem fékk að landa honum,” segir hún hlæjandi.

Og þessar athyglisverðu upplýsingar í lokin frá sýningarstjóranum.

„Tekjur af laxveiði eru til dæmis ríflega 50% af tekjum landbúnaðar í Borgarfirði þannig að þetta er gríðarlega mikilvæg atvinnugrein, sem þarf að passa vel upp á,” segir Anna Heiða.

Laxveiðisýningin er komin til að vera í safninu og er opinn samhliða opnun Landbúnaðarsafns Íslands á Hvanneyri.

Nýja sýningin er opin alla daga vikunnar frá 11:00 til 17:00. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Heimasíða Landbúnaðarsafns Íslands á Hvanneyri




Fleiri fréttir

Sjá meira


×