KA tapaði áfrýjun og þarf að greiða Arnari Ágúst Orri Arnarson skrifar 19. júní 2025 17:14 Arnar á rétt á rúmum níu milljónum auk dráttarvaxta. vísir Knattspyrnufélag Akureyrar tapaði áfrýjunarmáli sínu til Landsréttar gegn Arnari Grétarssyni, fyrrum þjálfara félagsins. KA þarf því að greiða Arnari 9.322.601 krónu ásamt dráttarvöxtum frá 5. nóvember 2023.
Arnar hætti störfum hjá KA haustið 2022 til að taka við Val, eftir að hafa stýrt KA í rúm tvö ár. Ákvæði var í samningi Arnars við KA um að hann fengi ákveðið hlutfall, tíu prósent, af Evrópugreiðslum frá UEFA en félaginu bárust þær greiðslur ekki fyrr en árið eftir að Arnar fór. Heildarupphæðin sem KA fékk var 550.000 evrur þegar liðið, þá undir stjórn Hallgríms Jónassonar sem áður var aðstoðarmaður Arnars, komst í gegnum fyrstu og aðra umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar sumarið 2023. Í dómi Landsréttar í dag var fallist á með héraðsdómi að Arnar hefði verið þjálfari liðsins samkvæmt samningi er liðið vann sér inn þátttökurétt í Evrópukeppninni, þótt vinnuframlag hans hefði verið afþakkað. Einhliða ákvörðun KA um að afþakka vinnuframlag Arnars í síðustu fimm leikjum tímabilsins gæti ekki fellt niður rétt hans til árangursgreiðslu samkvæmt samningnum. Arnar átti því rétt á tíu prósentum af þeirri heildarfjárhæð sem KA fékk greitt fyrir þátttökuna í Sambandsdeildinni 2023, að frádregnum ferðakostnaði félagsins. Óvíst er hvort KA hyggist áfrýja málinu til Hæstaréttar en ekki náðist í Sævar Pétursson, framkvæmdastjóra félagsins, við vinnslu fréttarinnar. Lögmaður Arnars, Heiðar Ásberg Atlason, sagði þó í samtali við Vísi að honum þætti það ólíklegt.
Íslenski boltinn KA Sambandsdeild Evrópu Besta deild karla Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira