Aukasýningu bætt við á vinsælustu ABBA sýningu heims Mania 19. júní 2025 12:10 Tónlist ABBA er skemmtileg og höfðar til allra aldurshópa. Miðarnir eru að seljast upp á kvöldsýninguna svo dagsýningu hefur verið bætt við. Eftir mikla eftirspurn eftir miðum á sýninguna Mania: The ABBA Tribute í Hörpu að kvöldi 27. september nk. hafa framleiðendur hennar ákveðið að bæta við auka sýningu sem haldin verður klukkan 15 sama dag í Eldborgarsal Hörpu. „
Við erum ákaflega ánægð með að íslenskir áhorfendur eru mjög spenntir að sjá Mania: The ABBA Tribute. Það eru aðeins örfá sæti eftir á kvöldsýninguna þannig að við erum ánægð að geta boðið upp á aðra sýningu meðan sveitin er á Íslandi. Tónlist ABBA er skemmtileg og höfðar til allra aldurshópa og ég er viss um að sýningin mun slá í gegn á Íslandi eins og hún hefur gert annars staðar. Sýningin er frábær skemmtun enda tónlist ABBA ein sú besta og frægasta í heimi," segir James Cundall,sem stýrir breska framleiðslufyrirtækinu Jamboree Entertainment sem flytur sýninguna til landsins. Mania: The ABBA Tribute er vinsælasta ABBA sýning í heimi og hefur verið sýnd í yfir 35 löndum síðustu tvo áratugi. Milljónir gesta hafa skemmt sér konunglega á Mania: The ABBA Tribute. Uppselt var á tónleikana í Shaftesbury leikhúsinu í West End 2021 og á alls 80 sýningum um öll Bandaríkin 2022 og 2023. Mania: The ABBA Tribute skartar hæfileikaríkum flytjendum og tónlistarfólki sem endurskapa síðustu tónleika hinnar goðsagnarkenndu sænsku hljómsveitar ABBA í lifandi flutningi með flottri sviðssetningu, búningum og lýsingu. Á sýningunni verða öll frægustu lög ABBA eins og Mamma Mia, Voulez Vous, Dancing Queen, The Winner Takes It All, SOS, Fernando, Does Your Mother Know, Gimme! Gimme! Gimme!, Waterloo og fleiri. Stuðið verður í Hörpu þessa helgi Það verður mikið um að vera í Hörpu þessa helgi í lok september með tvennum tónleikum Mania: The ABBA Tribute laugardaginn 27. september nk. og að auki mun Dominic and Halpin and the Hurricanes, ein vinsælasta kántrý hljómsveit Bretlands, stíga á svið einnig í Eldborgarsalnum með tónleikana A Country Night in Nashville föstudagskvöldið 26. september. Það er því ljóst að stuðið verður í Hörpu þessa helgi. Miðaverð á Mania: The ABBA Tribute og Country Night in Nashville er frá 5.990 kr til 14.990 kr og miðar eru í sölu á harpa.is og tix.is. Báðar sýningarnar verða í Eldborgarsalnum klukkan 20 á föstudags- og laugarskvöld 26. og 27. september og nú bætist við dagsýning á Mania klukkan 15 á laugardeginum 27. september.
Tónlist Mest lesið Chuck Norris er látinn Bíó og sjónvarp Piparjónkan tekin af dagskrá þremur dögum fyrir frumsýningu Lífið Taylor segir myndbandið hluta af rógsherferð en Dakota vill nálgunarbann Lífið Gjörbreytti íbúðinni með einni tilfærslu Lífið Framtíð Mengis óráðin þó eignin sé til sölu Menning Misheppnaður mömmuleikur Gagnrýni Ástrós og Adam eiga von á öðru Lífið Magnús Hlynur í Efstaleitið Lífið Edda tryllti gesti óvænt með Ladda Menning Breyta Reykjavík í kvikmyndagallerí út mánuðinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Góð tannhirða hefur bein áhrif á almenna heilsu líkamans Fermingarbörn virðast helst langa í raftæki og peninga Apple vörur eru fullkomin fermingargjöf Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Íslandsmeistaramót í spili alþýðunnar Ólsen ólsen Íslensk hönnun og vönduð efni skipta máli í upplifun gesta Þurrt hár og hvað er hægt að gera? Nýtt app frá Hreyfli komið í loftið Fjórar evrópskar perlur sem fullkomna vorferðina Langar þig að búa hluta árs í sólinni? Kynntu þér fasteignir á Spáni Unglingabólur eða úfið hár? Beautyklúbburinn er með lausnina Kerry Ellis og The Barricade Boys saman í Broadway Party í Hörpu Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira