Burns enn efstur og stefnir á sinn fyrsta Ágúst Orri Arnarson skrifar 15. júní 2025 09:47 Vætan var kylfingum erfið í gær. Patrick Smith/Getty Images Sam Burns er enn í efsta sæti, fjórum höggum undir pari, eftir þriðja keppnisdag Opna bandaríska meistaramótsins í golfi og gæti síðar í dag lyft sínum fyrsta risamótstitli á loft. Aðeins fjórir kylfingar eru undir pari eftir þrjá keppnisdaga.
Sam Burns var í efsta sætinu þegar hann fór af stað á hinum erfiða Oakmont golfvelli í Pennsylvaníu en skiptist oft á forystunni við J.J. Spaun. Spaun endaði hringinn hins vegar á skolla og missti efsta sætið. Hann er nú jafn Adam Scott í öðru sætinu, þremur höggum undir pari. The opportunity to become a U.S. Open champion is something special. Sam Burns has the outright 54-hole lead in a major championship for the first time in his career. pic.twitter.com/pHq1C0U1uM— U.S. Open (@usopengolf) June 15, 2025 Bæði Burns og Spaun eru í leit að sínum fyrsta risamótstitli og hinn 44 ára gamli Scott hefur aðeins einu sinni unnið risamót, fyrir tólf árum síðan. Sunday’s final pairing by the numbers. Anything stand out? pic.twitter.com/9KATDVQQR7— U.S. Open (@usopengolf) June 15, 2025 "If I were to come away with it tomorrow, it would be a hell of a round of golf and an exclamation point on my career."Adam Scott will try to win his first major championship in 12 years on Sunday. pic.twitter.com/tJAQs17QnF— U.S. Open (@usopengolf) June 15, 2025 Viktor Hovland er svo í fjórða sætinu, höggi undir pari, og Carlos Ortiz í fimmta sætinu, á pari. Aðrir kylfingar eru yfir pari. Stórstjörnur hafa verið í miklum vandræðum á mótinu, sem er leikið við erfiðar veður- og vallaraðstæður. Mikil rigning setti svip sinn á keppnina í gær. Efsti kylfingur heimslistans, Scottie Scheffler, er fjórum höggum yfir pari en þó ekki neðar en í ellefta sæti. Ríkjandi meistari mótsins og nýkrýndur PGA meistaramótssigurvegari, Bryson DeChambeau, er úr leik. Rory McIlroy, sem vann Masters mótið nýlega, er tíu höggum yfir pari í 49. sæti. Lokadagur Opna bandaríska fer fram í dag og verður í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay frá klukkan þrjú.
Golf Mest lesið Körfuboltaþjálfari leiddur af velli í handjárnum Körfubolti „Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti Forseti FIFA vill fá Rússland inn aftur: „Bannið hefur skapað meiri gremju og hatur“ Fótbolti Íslensk landsliðskona til nítjánfaldra Noregsmeistara Handbolti Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Enski boltinn Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Handbolti Úkraínumenn æfir vegna orða forseta FIFA: „Minnir á Ólympíuleikana 1936“ Fótbolti Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Körfubolti „Algjör þvæla að fara að rugga því eitthvað“ Handbolti Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Enski boltinn Fleiri fréttir LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti