Haaland: Ég mun spila bæði á HM og á EM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. júní 2025 15:30 Erling Braut Haaland fagnar sigri Norðmanna í rigningunni í Osló í gærkvöldi, Getty/ Adam Escada Framherji Manchester City var yfirlýsingaglaður eftir frábæran sigur Norðmanna á Ítölum í gærkvöldi.
Norðmenn hafa ekki verið með stórmóti karla í fótbolta síðan 2000 og ekki með á heimsmeistaramóti síðan 1998. Liðið vann hins vegar 3-0 sigur á Ítölum í fyrsta leik undankeppni HM 2026 í gær og það stefnir því í það að þeir endi loksins þessa bið síðan. Erling Braut Haaland hefur unnið allt með félagsliðum sínum. Hann innsiglaði sigurinn með þriðja markinu og var kátur í leikslok. NRK.no „Þetta var rosalega gaman þannig að ég kvarta ekki mikið í dag,“ sagði Haaland við TV2 eftir leikinn. Hann er á því að norska landsliðið verði að komast á HM. „Við erum alltof góðir til að keppa ekki á stórmótum. Ég mun spila bæði á HM og á EM. Ég er ekki að setja pressu á sjálfan en ég ætla að spila á HM,“ sagði Haaland. Haaland er fæddur 21. júlí 2000 en síðasti leikur Norðmanna á stórmóti var á Evrópumótinu í Hollandi og Belgíu nákvæmlega einum mánuði áður. Norðmenn hafa því aldrei verið með á stórmóti á meðan hann hefur verið á lífi. Þetta var 41. mark Haaland fyrir norska landsliðið en það kom í landsleik númer 42. Hann hefur fyrir nokkru bætt markamet norska landsliðsins.
HM 2026 í fótbolta Norski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira