Tónlist

Heldur sér við efnið og burt frá efnunum

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Alvia Islandia listakona og rappdrottning ræddi við blaðamann um lífið, edrúmennskuna, nýja tónlist og fleira.
Alvia Islandia listakona og rappdrottning ræddi við blaðamann um lífið, edrúmennskuna, nýja tónlist og fleira. Vísir/Anton Brink

„Ég er rosalega ánægð að vera komin á þann stað að geta staðið í fæturna og horfst í augu við sjálfa mig. Það er ótrúlega leiðinlegt að vera með drauma en þú getur engan veginn tekið eitt skref í áttina að þeim,“ segir tónlistarkonan Andrea Rán Jóhannsdóttir, betur þekkt sem Alvia Islandia. Hún er farin á fullt í tónlistinni eftir nokkurra ára fjarveru og ræddi við blaðamann um lífið, listina, edrúmennskuna og fallega framtíð.

Alvia Islandia er fædd árið 1993 og skaust fram á sjónarsviðið árið 2015 þegar hún gaf út lagið Sugar Complex. Hún hefur fetað ótroðnar slóðir á sviði tónlistarinnar með einstöku gellu hip hop-i og komið víða fram á sínum ferli en líf hennar hefur einkennst af háum hæðum og djúpum lægðum. 

Alvia Islandia skaust fram á sjónvarsviðið árið 2015 og hefur alltaf farið eigin leiðir í tónlistinni. Vísir/Anton Brink

Sextán ára gömul flutti hún að heiman og leiddist ung í neyslu fíkniefna. Í dag er hún búin að vera edrú í rúmt ár, er ástfangin í sambandi með strák sem heitir Ólafur og allt stefnir upp á við.

Alvia gaf út lagið Vinna fyrr á árinu og frumsýnir hér tónlistarmyndband við lagið. Berglaug Petra sá um kvikmyndatöku, klipp & eftirvinnsla eftir Bryngeir Vattnes:

Klippa: Alvia Islandia - Vinna

Í of mikilli neyslu fyrir tónlistina

Alvia hefur gengið í gegnum ýmis áföll á lífsleiðinni og fann fyrir nokkrum árum að hún þurfti að draga sig í hlé og fá viðeigandi aðstoð.

„Ég dró mig alveg út úr tónlistinni á sínum tíma því ég var bara komin í of mikla neyslu. Það var hvorki gaman að láta sjá sig þannig né var ég í ástandi til að geta gert nokkurn skapaðan hlut. Ég er núna búin að vera edrú í meira en ár,“ segir Alvia og það sést langar leiðir að hún hefur verið í mikilli sjálfsvinnu. 

Tónlistin var mikill drifkraftur í edrúmennskunni hjá Alviu.Vísir/Anton Brink

Tónlistin var mikill drifkraftur fyrir hana í vegferðinni.

„Það snerist ekkert endilega um að koma fram og spila, heldur fyrst og fremst um að geta gert það sem mér finnst gaman, sem er að skapa. Ég er rosalega ánægð að vera komin á þann stað að geta staðið í fæturna og horfst í augu við sjálfa mig.

Það var alltaf hvatning að verða edrú. Það er ótrúlega leiðinlegt að vera með drauma en þú getur engan veginn tekið eitt skref í áttina að þeim.

Þegar ég var að gera tónlist og gefa út á sínum tíma þá fékk ég alls konar tækifæri sem leiða mann gjarnan nær því sem mann langar að gera en mér leið lengi eins og ég væri bara búin að klúðra því,“ segir Alvia og bætir við að það sé auðvitað ekki þannig.

Auðvelt að vera skapandi og hafa gaman edrú

Hún segist sömuleiðis hafa haft ranghugmyndir um edrúmennskuna.

„Ég er að sinna mikilli sjálfsvinnu núna en ég hélt alltaf að það yrði svo ógeðslega leiðinlegt að verða edrú því ég var búin að vera stöðugt í einhverri neyslu frá því ég var unglingur. Svo þróaðist það yfir í að ég missti algjörlega tökin.“

Listin er mikil þerapía fyrir Alviu.Vísir/Anton Brink

Þó átti hún eftir að afbaka þessar hugmyndir. 

„Mér fannst ótrúlega skrýtið að sjá fyrir mér að vera skapandi og vera edrú, að vera að gera eitthvað skemmtilegt og vera edrú, ég bara gat ekki tengt þessa hluti saman. 

Það er ný upplifun fyrir mér að það er bara gaman núna og ég get verið meðvituð í tengingunni. Það er stórkostlegt að kynnast sjálfri mér og lífinu á nýjan hátt.“

Flutti sextán ára að heiman

Alvia byrjaði snemma að koma fram á klúbbum bæjarins og spyr blaðamaður hvort tengingin á milli þess að vinna í tónlist og djamma hafi verið of óljós.

„Já, að einhverju leyti. En ég byrja líka að flýja ýmislegt úr minni æsku þegar ég er unglingur. 

Ég flyt að heiman þegar ég er sextán ára og fer strax rosalega mikið í flótta og að deyfa mig. Ég náði svo ekki að loka á það. 

Svo kemur hitt ofan á líka, að vera að vinna og taka upp á næturnar og koma fram á djamminu, þá er maður með rosalega afsökun og maður getur falið ruglið lengi á bak við þessa rútínu. 

Að þurfa til dæmis ekki að mæta eitthvert frá níu til fimm. Þannig ég gat líka logið svolítið mikið að sjálfri mér í gegnum það.“

Ekki fyrirmynd heldur fyrirliði

Hún segist upplifa mikla breytingu á bransanum hvað varðar til dæmis edrúmennsku sem margir listamenn hafa rætt um opinskátt.

„Það er engin skömm heldur. Mér finnst yngri kynslóðin nálgast þetta vel. Það er ekki ómissandi að vera undir áhrifum til að skemmta sér. 

Ég áttaði mig líka á því að allir sem eru að vinna við eitthvað skapandi professionally, hvort sem það er í leiklist, tónlist, myndlist eða öðru, þá þarftu alltaf að mæta og skila þínu. 

Þeir sem eru að ná einhverjum árangri eru í yfirgnæfandi prósentu tilvika ekki í einhverri dagneyslu og rugli. Það líður engum vel þar get ég sagt þér.“
Listaverk eftir Alviu sem var á sýningu hennar í Núllinu.Aðsend

Alvia er full tilhlökkunar að vera byrjuð aftur í tónlistinni.

„Þegar lagið kom út var ég ekkert búin að senda frá mér í nokkur ár. Ég segi einmitt: „Þetta er ekki comeback ‘etter bitchslapp. Lagið er svokallaður Bad Bitch Anthem“ segir Alvia kímin og bætir við: „Ég syng meðal annars að ég spili til að vinna og ég sé ekki fyrirmynd, ég er fyrirliði.“

Alvia syngur um að vera ekki fyrirmynd heldur fyrirliði.Aðsend

„Svo er ég að vinna að mörgu, ég er með smáskífu í vinnslu og ég var með í að pródúsera tvö lög af henni. Ég er líka að fara að opna heimasíðuna Gen.Tekken í byrjun júlí og ætla að vera með boli og annan varning til sölu þar. 

Ég verð meðal annars með samstarfsverkefni við aðrar tónlistardrottningar á borð við Kolfreyju eða Alazka1867, Tatjönu úr Ex.Girls og Völu Crunk.“ 

Hér má hlusta á lagið á streymisveitunni Spotify. Hér má sjá myndbandið og fleiri myndbönd Alviu á Youtube. 

Opnaði listasýningu til að halda sér edrú

Þær eru margar listrænu hliðar þessarar hæfileikaríku tónlistarkonu. Í vetur opnaði hún sem dæmi listasýninguna Manifest Destiny í Núllinu á Bankastræti og segir listsköpun yfir höfuð mikla þerapíu fyrir sig.

Alvia að setja upp sýninguna í Núllinu.Aðsend

„Ég hef alltaf haft áhuga á myndlist og þegar ég byrjaði í menntaskóla fór ég á myndlistarbraut í FB en hætti svo. Mér fannst alltaf eins og ég yrði að velja hvort ég ætlaði að vera í tónlist eða myndlist sem er auðvitað ekki rétt. 

En sýningin Manifest Destiny var rosalega mikil þerapía. Ég bókaði Núllið þegar ég var að byrja að verða edrú og fannst heilandi að fara að vinna í sýningu. Að halda sér við efnið frá efninu. Það var ótrúlega gaman og ég seldi öll verkin. Núna er að vinna að annarri stærri sýningu,“ segir Alvia öflug og brosandi að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.