Enski boltinn

Chelsea vann á Wembley og full­komnaði þrennuna

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Sandy Baltimore skoraði fyrsta og síðasta mark leiksins.
Sandy Baltimore skoraði fyrsta og síðasta mark leiksins. Catherine Ivill - AMA/Getty Images)'

Chelsea varð FA bikarmeistari með 3-0 sigri gegn Manchester United í úrslitaleik á Wembley. Titilinn var sá þriðji á tímabilinu hjá Chelsea sem bar höfuð og herðar yfir önnur lið á Englandi.

Chelsea hafði unnið FA bikarinn þrjú ár í röð, misst hann til Manchester United á síðasta tímabili en endurheimti titilinn í dag og fullkomnaði þar með þrennutímabil sitt. FA bikarinn auk Englandsmeistaratitilsins og deildabikarsins.

Sandy Baltimore skoraði fyrsta markið úr vítaspyrnu rétt fyrir hálfleik. Celin Bizet braut af sér en dómarinn var vægast sagt aumur, samkvæmt lýsanda breska ríkisútvarpsins.

Baltimore stóðst pressuna fyrir framan mark Manchester United og rauðan sjó stuðningsmanna sem stóðu fyrir aftan, og lagði boltann í vinstra hornið.

Það dró svo ekki til tíðinda fyrr en seint í seinni hálfleik, þegar Catarino Macario bætti öðru marki við fyrir Chelsea. Sandy Baltimore setti svo þriðja markið í uppbótartíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×