Vó að æru Margeirs með því að færa hann til í starfi Jón Þór Stefánsson skrifar 16. maí 2025 08:10 Ákvörðun lögreglustjórans um að færa Margeir Sveinsson til í sarfi hefur verið ógilt. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Reykjavíkur hefur komist að þeirri niðurstöðu að ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um að breyta verksviði Margeirs Sveinssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns, hafi ekki verið málefnaleg. Ríkið þarf að greiða honum tvær milljónir í miskabætur og 1,6 milljónir í málskostnað.
Málið varðar breytingu á störfum Margeirs sem voru gerðar árið 2023. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur segir að fyrir liggi í málinu að Margeir hafi átt í ástarsambandi við rannsóknarlögreglukonu sem var undirmaður hans sem hafi staðið yfir í stutta hríð, frá haustinu 2022 til áramóta þetta sama ár. Í lok árs 2022 hafi þessi kona kvartað til yfirlögregluþjóns yfir óþægilegri hegðun af hálfu Margeirs. Í febrúar 2023 hafi málið verið leyst með óformlegum hætti og þau sammælst um að „leggja spilin á borðið“ og geta unnið saman aftur. Í byrjun mars hafi hún svo formlega tilkynnt um áreitni af hálfu Margeirs. Hún hafi óskað þess að málið yrði tekið alvarlega og að brugðist yrði hratt við. Hún sagði að málið hefði haft „gífurleg áhrif á líðan hennar í vinnunni og utan hennar“. Þá gæti hún ekki mætt meðan hann væri í vinnunni. Degi síðar hafi Margeir verið upplýstur um kvörtunina, sem er sögð hafa varðað ítrekaðar skilaboðasendingar hans til hennar þrátt fyrir að hún hefði beðið hann um að senda sér ekki. Ekki tilefni til að saksækja Fyrirtæki var fengið til að gera úttekt á málinu. Og lá mat þess fyrir í lok maí þetta sama ár. Niðurstaða þess var að konan hefði ítrekað orðið fyrir áreitni af hálfu Margeirs. Í tíu af tólf tilfellum sem voru til skoðunar mætti skilgreina háttsemi Margeirs sem ofbeldi. Minnst var á áðurnefndar skilaboðasendingar sem og óboðinni heimsókn hans til hennar. Lögreglustjórinn tilkynnti héraðssaksóknara um hugsanlega refisverða háttsemi Margeirs. Það var þó mat saksóknara að ekki væri tilefni til að hefja rannsókn, og málinu því vísað frá. Áminntur og færður í annað starf Margeir hafði farið í veikindaleyfi eftir að málið kom upp, en í byrjun júlímánaðar hafði hann, samkvæmt læknisvottorði, náð fullri starfshæfni. Lögreglustjórinn hins vegar sagði vinnuframlag hans afþakkað á meðan kvörtun konunnar væri til meðferðar. Um haustið var Margeiri veitt áminning í starfi fyrir að hafa farið yfir mörk undirmanns síns á meðan og eftir að ástarsamband þeirra stóð yfir. Og þá tók lögreglustjórinn ákvörðun um að breyta störfum hans og verksviði. Þar var sérþekkingar hans krafist, en hann var ekki lengur yfirmaður deildar eins og áður. Breytingin hafði ekki áhrif á launakjör hans. Mánuðina á eftir kvartaði Margeir og setti út á þessar ákvarðanir. Lögreglustjórinn sagðist standa við þær í svörum til hans. Einelti og ofbeldi í hans garð Í ágúst í fyrra fór Margeir í veikindaleyfi. Hann tiltók að framkoma æðstu stjórnenda lögreglunnar hefði valdið honum miklum þjáningum og vanlíðan. Vegna þess treysti hann sér ekki til að mæta til vinnu. Hann höfðaði svo málið sem héraðsdómur hefur nú dæmt í. Hann lét dómsmálaráðherra vita af málarekstrinum og sagðist upplifa sig jaðarsettan í störfum sínum, og eftir að hann höfðaði málið hefði ástandið versnað. Um væri að ræða einelti og ofbeldi í hans garð. Ráðuneytið kannaði málið en virðist hafa tekið ákvörðun um að aðhafast ekki. Vegið að æru Margeirs Í niðurstöðu héraðsdóms segir að lögreglustjóranum hefði verið kleift að láta Margeir sinna sams konar störfum og hann hafði áður gengt án þess að hann yrði áfram yfirmaður konunnar. Ákvörðun lögreglustjórans hefði brotið í bága við lög, en hún hefði verið meira íþyngjandi en nauðsyn bar til þrátt fyrir að launakjör Margeirs hefðu ekki verið skert. Í dómnum segir að þó að Margeir hafi sýnt af sér ósæmilega háttsemi í garð undirmanns væri fallist á það að ákvörðunin um að færa hann til í starfi hafi verið meiðandi. Ákvörðunin hafi vegið að æru og persónu hans. Því féllst dómurinn á að ríkið skyldi greiða honum miskabætur. Margeir krafðist einnig miskabóta vegna upplýsingagjafar lögreglustjórans til fjölmiðla um málið. Dómurinn féllst ekki á það. Niðurstaða dómsins var sú að ákvörðun lögreglustjórans yrði felld úr gildi, og að ríkið myndi greiða Margeiri tvær milljónir í miskabætur og 1,6 milljónir í málskostnað.
Lögreglan Dómsmál Mál Margeirs Sveinssonar Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Sjá meira